Suðaustan 10-18 m/s, en hvassara í vindstrengjum á norðanverðu Snæfellsnesi. Rigning eða súld með köflum, en talsverð rigning um tíma á morgun. Snýst í sunnan og suðvestan 8-13 og með skúrum annað kvöld. Hiti 6 til 12 stig að deginum.
Spá gerð: 18.05.2013 14:30. Gildir til: 20.05.2013 00:00.
Á mánudag (annar í hvítasunnu):
Suðvestan 8-13 með skúrum, en hægari vestlæg átt og léttskýjað á A-verðu landinu. Hiti 5 til 11 stig, en svalara NV-lands.
Á þriðjudag:
Vestan og norðvestan 5-13 m/s með skúrum eða slydduéljum, en þurrt SA-lands. Hiti 2 til 8 stig, hlýjast SA-lands.
Á miðvikudag:
Norðvestanátt með lítilsháttar skúrum eða éljum NA-lands, en hægari norðlæg átt annars staðar og léttir til. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast sunnanlands.
Á fimmtudag:
Austlæg átt og víða bjartviðri en þykknar upp sunnantil síðdegis. Hlýnar í veðri.
Á föstudag:
Sunnan- og suðaustanátt með rigningu en yfirleitt þurrt NA-til. Hiti breytist lítið.
Spá gerð: 18.05.2013 09:15. Gildir til: 25.05.2013 12:00.