2010

IMG_2346

1.9.2010 : Ágúst 2010

Hlýtt var í ágúst. Um vestan- og suðvestanvert landið var hann einn af fimm hlýjustu mánuðum frá upphafi mælinga en í öðrum landshlutum var heldur svalara að tiltölu, svalast á Austfjörðum. Hiti var þó alls staðar yfir meðallagi. Þurrt var sums staðar um landið norðvestanvert en fremur úrkomusamt víða annars staðar. Lesa meira
 
ský

31.8.2010 : Rannsóknarverkefnið Loftslag og orkukerfi (CES): lokaráðstefna

Alþjóðleg lokaráðstefna norræna rannsóknarverkefnisins Loftslag og orkukerfi (Climate and Energy Systems, CES) var haldin í Osló 31. maí til 2. júní síðastliðinn. Kynntar voru rannsóknir á loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra á orkuframleiðslu og orkukerfi. Verkefnið er það þriðja í röðinni frá 2001 og hafa þau öll verið undir stjórn Veðurstofu Íslands og fyrrum Vatnamælinga.

Lesa meira
 
maður krýpur í snjó, dregur ískjarna úr hólki

25.8.2010 : Leyndardómar Grænlandsjökuls

Ráðstefna haldin í Háskóla Íslands 27.- 29. ágúst 2010. Hún ber undirtitilinn Vitnisburður ískjarna, setlaga og jökla um loftslagsbreytingar og eldgosasögu og er haldin í tilefni af 70 ára afmæli Sigfúsar J. Johnsens, eðlis- og jöklafræðings við Hafnarháskóla. Sunnudaginn 29. ágúst er dagskráin opin öllum og á íslensku. Lesa meira
 
Jarðskjálftar á Íslandi í júlí 2010

23.8.2010 : Jarðskjálftar í júlí 2010

Um 1500 jarðskjálftar voru staðsettir með SIL mælakerfi Veðurstofunnar í júlí. Stærsti atburður mánaðarins var skjálftahrina norðan við Grímsey og hófst hún 22. júlí. Lesa meira
 




Aðrir tengdir vefir


Eplica CMS. eplica cmscms - for more info goto http://www.eplica.is.