Fréttir

úr lofti sjást lægðaský gera tvö hringmynstur
© NASA Earth Observatory
Á tíu ára afmæli vefseturs fyrir gervihnattamyndir hjá NASA fór fram samkeppni um hinar eftirminnilegustu af "myndum dagsins" undanfarinn áratug. Í tíunda sæti varð mynd frá hafsvæðinu sunnan við Ísland. Hún sýnir skýjasveipi samfara tveimur lægðum nærri landinu 20. nóvember 2006. Austari lægðin var á ákveðinni hreyfingu til austurs eða austnorðausturs og hafði dýpkað ört daginn áður sunnan við Ísland. Hér er hún farin að grynnast. Vestari lægðin var hins vegar hægfara enda varð hún til í háloftalægðardragi í skjóli Grænlands. Daginn eftir var hún horfin, en austari lægðin var þá sprelllifandi þó farið væri að sjá á henni.



Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica