Fréttir
Jólasnjór í Reykjavík 2007.
Tré og jörð klædd snjó um jólin 2007.

Árið 2007

Bráðabirgðatíðarfarsyfirlit frá Veðurstofu Íslands

28.12.2007

Árið var mjög hlýtt, það tíunda hlýjasta frá upphafi mælinga á velflestum stöðvum um sunnan- og vestanvert landið en það 14. til 15. hlýjasta norðaustanlands. Í Reykjavík var hitinn 1,2 stigum ofan meðallags, lítillega hærra en árið 2006 og aðeins kaldara en 2004, en meir en hálfu stigi kaldara en metárið 2003.

Úrkoma var óvenjumikil á mestöllu Suður- og Vesturlandi. Þegar þetta er skrifað, 28. desember, er árið það 8. úrkomusamasta sem vitað er um í Reykjavík, 5. úrkomusamasta í Stykkishólmi og í þriðja sæti í Vestmannaeyjum. Þar sem mikilli úrkomu er spáð síðustu helgi ársins er trúlegt að lokaniðurstaða verði enn hærra sæti á þessum stöðvum. Úrkomumagn þetta er ekki síst athyglisvert í ljósi þess að fádæma þurrt var langt fram eftir sumri á mestöllu landinu. Norðaustanlands var úrkoma hins vegar nærri meðallagi þegar litið er á árið í heild.

Úrkomutíð hefur staðið samfellt á Suður- og Vesturlandi frá því í ágúst. Úrkoma síðustu fimm mánuði ársins hefur aldrei mælst meiri í Stykkishólmi (mælt frá 1857) og í Reykjavík mun meiri en nokkru sinni áður á sama tímabili ársins (mælt samfellt frá 1921 og einnig 1885 til 1906). Sömuleiðis í Vestmannaeyjum, en þar eru mælingar samfelldar frá 1881.

Janúar var umhleypingasamur mánuður og snjór meiri suðvestanlands en verið hefur í nokkur ár. Mikið kuldakast gerði dagana 6. til 20. en mánðarmeðalhitinn var samt nærri meðallagi. Tíð var víðast mjög hagstæð í febrúar, mjög snjólétt um mikinn hluta landsins og færð með besta móti. Óvenjusólríkt var um sunnan- og vestanvert landið og úrkomudagar óvenjufáir. Tíðarfar í mars var fremur órólegt, var þó lengst af hagstætt til landsins, en til sjávarins var gæftalítið og tíðin talin slæm. Samgöngutruflanir á heiðarvegum voru með tíðara móti sökum illviðra, en snjór var með minna móti í lágsveitum miðað við árstíma. Þrálát snjóflóðahætta var norðan til á Vestfjörðum þó að snjór væri ekki mikill að magni til.

Tíðarfar var almennt hagstætt í apríl en hans verður einkum minnst fyrir tvær óvenjulegar hitabylgjur. Sú fyrri varð um landið austanvert í byrjun mánaðarins og komst hiti þann 3. í 21,2 stig í Neskaupstað. Hiti hefur ekki mælst hærri svo snemma árs. Síðari hitabylgjan gekk yfir mikinn hluta landsins síðustu daga mánaðarins. Landshitamet aprílmánaðar féll þann 29. þegar hiti komst í 23,0°C á sjálfvirku stöðinni í Ásbyrgi í Öxarfirði og í 21,9°C á mönnuðu stöðinni á Staðarhóli í Aðaldal. Hvoru tveggja er met í sínum stöðvaflokki. Hitamet féllu mjög víða á einstökum veðurstöðvum. Mjög hlýtt var fyrstu dagana í maí en annars var mánuðurinn kaldur og snjóaði víða, m.a. sunnanlands í síðustu viku mánaðarins og er það mjög óvenjulegt.

Júni var hlýr og þurr víðast hvar á landinu. Hlýjast að tiltölu var á Vestfjörðum þar sem hiti var meir en þremur stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990. Vegna sífelldra flutninga veðurstöðva er heldur óhægt um samanburð en mánuðurinn er samt annar eða þriðji hlýjasti júní frá upphafi mælinga á þessum slóðum um aldamótin 1900. Mjög þurrt var á landinu, fádæma þurrt norðaustanlands og hefur aldrei mælst jafnlítil úrkoma í júní á Akureyri og nú, en þar mældist mánaðarúrkoman aðeins 0,4 mm.

Júlímánuður var mjög hlýr um landið sunnan- og vestanvert, hiti var í ríflegu meðallagi víðast fyrir norðan, en við austur- og suðausturströndina var hitinn nærri meðallagi. Óvenjuþurrt var um mikinn hluta landsins mestallan mánuðinn, jafnvel svo að gróðri hrakaði og vatnsból þornuðu. Mestir voru þurrkarnir inn til landsins á Vesturlandi, víðast hvar á vestanverðu Norðurlandi austur til Eyjafjarðar og sums staðar á Vestfjörðum. Einnig var óvenjuþurrt í Hornafirði og sums staðar sunnan til á Austfjörðum þar til allra síðustu daga mánaðarins. Mest var úrkoman að tiltölu norðan til á Austfjörðum en náði þó ekki meðalúrkomu að magni til.

Júlí var sá næsthlýjasti sem komið hefur í Reykjavík frá upphafi samfelldra mælinga 1871, hlýrra varð 1991. Meðalhiti í júlímánuðunum 1936, 1939 og 1944 er þó ekki marktækt lægri en hitinn nú. Flutningar Veðurstofunnar um bæinn auka á óvissuna. Séu mánuðirnir júní og júlí teknir saman er jafnhlýtt nú og var sömu mánuði árið 2003, hvoru tveggja hlýrra en dæmi eru annars um frá upphafi mælinga. Þetta var 12. júlímánuðurinn í röð með hita yfir meðallagi í Reykjavík. Í Stykkishólmi voru júní og júlí saman þeir hlýjustu frá 1933 og þar með næsthlýjastir frá upphafi, munur er þó vart marktækur.

Í Reykjavík mátti heita þurrt frá 10. júní til mánaðamóta júní/júlí og lítið rigndi fyrr en eftir 19. júlí. Á allmörgum stöðvum um norðvestanvert landið var mánaðarúrkoman innan við 10 mm og í beinu framhaldi af þurrum júní var sums staðar farið að gæta vatnsskorts. Einna óvenjulegastir virðast sumarþurrkarnir hafa verið um landið suðaustanvert, austan Öræfa, en úrkoma í júní til ágúst mældist aðeins 106 mm á Teigarhorni og hefur aldrei mælst minni frá upphafi mælinga 1873.

Í ágúst skipti rækilega um veðurlag, framan af mánuðinum var fremur þurrt en síðan hófust rigningar, einkum þó á Suður- og Vesturlandi. Næturfrost voru algeng á Suðurlandsundirlendinu en aðrir landshlutar sluppu mun betur.

Mánuðirnir september til desember hafa verið óvenjuúrkomusamir um sunnan- og vestanvert landið en nyrðra þornaði eftir því sem á haustið leið, nóvember var t.d. einn hinn þurrasti sem þekkist á Akureyri. Hiti hefur lengst af verið í ríflegu meðallagi. Tíð hefur verið mjög rysjótt og sérlega stormasöm eftir 20. nóvember. Mjög snjólétt hefur verið það sem af er vetri.

Yfirlit þetta verður endurnýjað upp úr áramótum þegar endanlegar tölur liggja fyrir.

Trausti Jónsson





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica