Fréttir
Sjálfvirkt staðsettir jarðskjálftar á Reykjaneshrygg
Sjálfvirkt staðsettir jarðskjálftar á Reykjaneshrygg.

Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg

18.2.2010

Upp úr miðnætti í nótt hófst jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg en mesta virknin var frá 04:30 til 06:00 og mældist á jarðskjálftastöðvum um allt land.

Í morgun höfðu á þriðja hundrað skjálftar mælst, flestir við Geirfugladrang u.þ.b. 40 km suðvestur af Reykjanestá. Stærsti skjálftinn varð kl. 05:22 og var hann 3,6 að stærð.

Í byrjun síðustu viku varð einnig hrina á þessum slóðum sjá nánar hér.

Jarðskjálftahrinur eru nokkuð algengar á Reykjaneshrygg og má t.d. nefna að 1. nóvember á síðasta ári mældust þar nokkur hundruð jarðskjálftar og nokkrir þeirra um og yfir 4 stig. Heldur hefur dregið úr virkninni eftir því sem liðið hefur á morguninn.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica