Fréttir

Skaftárhlaupið rénar

Skaftárhlaupið kom úr Vestari-Skaftárkatlinum

22.1.2014

Fyrr í dag voru starfsmenn Veðurstofunnar í feltvinnu á Vatnajökli og þeir staðfestu að Skaftárhlaupið kom úr vestari katlinum.

Rennsli Skaftár við Sveinstind heldur áfram að sjatna eftir að hámarki var náð þar snemma þann 20. janúar. Athygli er vakin á því að rennslið við Sveinstind er líklega ofmetið vegna íss í árfarveginum en rennslið við Skaftárdal er nú um 196 rúmmetrar á sekúndu og fer hægt minnkandi. Úrkoma síðasta sólahringinn hefur hjálpað til við að viðhalda hámarki hlaupsins í Eldvatni, Kúðafljóti og Skaftá. Gera má ráð fyrir að hlaupið muni halda áfram að sjatna á næstu dögum.

Engin merki um hlaup úr hinum katlinum

Eystri ketillinn er einnig fullur af vatni og er löngu kominn á tíma. Síðasta hlaup úr eystri katlinum var í júní 2010 og stöku sinnum hafa báðir katlarnir tæmst með nokkurra vikna millibili.

Vatnssöfnun í Eystri-Skaftárkatlinum er nokkuð jöfn, því er langur tími á milli flóða jafnan ávísun á stór flóð. Hámarksrennsli í hlaupum úr eystri katlinum hefur mest orðið um 1.500 rúmmetrar á sekúndu við Sveinstind. Skaftá getur vaxið úr eðlilegu rennsli í 1.000 til 1.500 rúmmetra á sekúndu á innan við sólarhring. Eins og staðan er núna eru þó engin sjáanleg merki þess að hlaup sé að hefjast úr eystri katlinum.

Af vatnafarsforsíðu er hægt að skoða rennsli í Eldvatni við Eystri-Ása (óyfirfarnar frumniðurstöður). Starfsmenn Veðurstofu fylgjast náið með þróuninni. Á RÚV má sjá viðtal við sérfræðing Veðurstofu (tímasetning 11:03).

Fyrri fréttir

Ljósmyndir frá Skaftárhlaupi

Um Skaftárhlaupið

Skaftárhlaup er hafið





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica