Fréttir
Frá Langanesi.

Tíðarfar í apríl 2015

Stutt yfirlit

4.5.2015

Mjög kalt var fyrstu tvo daga mánaðarins og sömuleiðis í síðustu vikunni. Tíð var lengst af hagstæð um landið norðaustan- og austanvert, en þótti síðri í öðrum landshlutum. Hiti var lítillega undir meðallagi áranna 1961 til 1990 um landið suðvestanvert en annars yfir því – mest á Austurlandi þar sem hiti var einnig lítillega yfir meðallagi síðustu tíu ára. Mun kaldara var í apríl 2013 heldur en nú. Úrkomusamt var norðan til á Vestfjörðum og sums staðar norðanlands – en úrkoma var í slöku meðallagi um landið suðvestan- og vestanvert.

Hiti

Mánaðarmeðalhitinn í Reykjavík mældist +2,4 stig, -0,5 stigum undir meðallagi áranna 1961 til 1990 en -1,5 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri var mánaðarmeðalhitinn +2,6 stig, +1,0 stigi yfir meðallagi 1961 til 1990 en -0,1 stigi undir meðallagi síðustu tíu ára.

Meðalhita og vik á fleiri stöðvum má sjá í töflu.

stöð meðalhiti vik 1961-1990 röð af vik 2005-2013
Reykjavík 2,4 -0,5 90 145 -1,5
Stykkishólmur 2,1 0,5 60 170 -0,7
Bolungarvík 1,1 0,4 74 118 -0,6
Grímsey 1,1 1,1 37 142 -0,2
Akureyri 2,6 1,0 44 134 -0,1
Egilsstaðir 2,2 1,5 22 61 1,0
Dalatangi 2,8 1,4 20 77 0,3
Teigarhorn 3,1 0,9 37 til 38 143 0,1
Höfn í Hornafirði 3,8 1,0
Stórhöfði 2,7 -0,6 99 139 -1,4
Hveravellir  -3,6 -0,3 34 51 -1,5
Árnes 1,5 -0,5 82 136 -1,4

Að tiltölu var hlýjast um landið norðaustan- og austanvert, en kaldast við suður- og suðvesturströndina. Mesta jákvæða hitavik miðað við meðaltal síðustu tíu ára var +0,4 stig á Seyðisfirði, en mesta neikvæða vikið var á Skrauthólum þar sem hiti var -1,7 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára.

Meðalhiti mánaðarins var hæstur í Kvískerjum, 4,1 stig, en lægstur á Þverfjalli og í Sandbúðum, -4,9 stig. Lægstur var meðalhitinn í byggð í Möðrudal, -1,1, stig.

Landsmeðalhiti í byggð var undir frostmarki 12 daga mánaðarins, það var sá 1. sem var kaldastur að tiltölu.

Hæsti hiti mánaðarins mældist 19,9°C í Neskaupstað þann 18. Lægsti hiti á landinu mældist -22,7 stig á Brúarjökli þann 2. Lægsti hiti í byggð mældist -17,3 stig á Þingvöllum þann 2.

Hæsti hiti á mannaðari stöð mældist á Skjaldþingsstöðum þann 18., 18,2 stig. Lægsti hiti á mannaðri stöð mældist á Grímsstöðum á Fjöllum þann 25., -14,6 stig.

Úrkoma

Úrkomusamt var norðan til á Vestfjörðum og sums staðar norðanlands – en úrkoma var í slöku meðallagi um landið suðvestan- og vestanvert.  

Úrkoma í Reykjavík mældist 47,8 mm og er það 82 prósent af meðalúrkomu áranna 1961 til 1990. Í Stykkishólmi mældist úrkoman 44,8 mm. Það er 85 prósent af meðallagi. Á Akureyri mældist úrkoman 48,0 mm og er það um 60 prósent umfram meðallag. Þetta er mesta úrkoma í apríl á Akureyri síðan 1989, en var þó nærri því eins mikil í apríl 2007. Á Höfn í Hornafirði mældist úrkoman 63,9 mm.

Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri voru 13 í Reykjavík, einum fleiri en í meðalári. Á Akureyri voru slíkir dagar 8 og er það tveimur fleiri en í meðalári.

 Við sólsetur
""Starfsmaður Veðurstofunnar hugar að mælitækjum í mastri veðurstöðvarinnar í Vattarnesi við mynni Reyðarfjarðar hinn 16. apríl 2015 kl. 20:16. Ljósmynd: Vilhjálmur Smári Þorvaldsson. Stækkanleg.

Sólskinsstundafjöldi

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 149,4 og er það 9 stundum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990, en 20 stundum undir meðallagi síðustu tíu ára. Sólskinsstundir á Akureyri mældust 140,2 og er það 11 stundum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990 og 10 yfir meðallagi síðustu tíu ára.

Snjólag

Snjór var lengst af ekki mikill að magni til, en þó snjóaði óvenjumikið sums staðar austanlands síðustu daga mánaðarins.

Alhvítir dagar í Reykjavík voru 2, það er einum degi færri en að meðaltali í apríl á árunum 1971 til 2000. Alhvítt var í 14 daga á Akureyri, þremur dögum færri en í meðalapríl áranna 1971 til 2000. Alhvítir dagar hafa þó ekki orðið jafnmargir í apríl á Akureyri síðan 1999, þá voru þeir 25.

Vindhraði og loftþrýstingur

Meðalvindhraði var óvenjumikill, 1,6 m/s ofan við meðallag. Þetta er mesti meðalvindhraði sem vitað er um í apríl, komst næst þessu í apríl 2011 og 1953, en hafa verður í huga að óvissa er nokkur í þessum landsmeðaltölum.  

Meðalloftþrýstingur í Reykjavík mældist 1010,4 hPa og er það -0,1 hPa undir meðallagi áranna 1961 til 1990.

Hæsti loftþrýstingur mánaðarins mældist í Bolungarvík þann 26., 1033,4 hPa. Lægsti loftþrýstingur mánaðarins mældist á Dalatanga þann 11., 964,3 hPa.

Fyrstu fjórir mánuðir ársins (janúar til apríl)

Meðalhiti í Reykjavik var 0,7 stig. Það er -0,1 stigi undir meðallagi áranna 1961 til 1990 en -1,4 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhiti 0,5 stig, -0,3 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára en 1,3 stigum ofan meðallags áranna 1961 til 1990.

Í Reykjavík mældist úrkoma um 40 prósent umfram meðallags en um 20 prósent ofan þess á Akureyri.

Alhvítir dagar voru 40 í Reykjavík og er það þremur dögum færri en að meðaltali 1971 til 2000 en tólf dögum fleiri en að meðaltali síðustu tíu ár.

Á Akureyri voru alhvítir dagar 67 og er það 6 dögum minna en að meðaltali 1971 til 2000 en þrettán dögum fleiri en að meðaltali síðustu tíu ár.

Skjöl fyrir apríl

Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í apríl 2015 (textaskjal).

Þessa grein, tíðarfar í apríl 2015, er einnig hægt að lesa sem PDF-skjal (0,3 Mb)

Daglegt yfirlit mánaðarins á fjórum ákveðnum veðurstöðvum má sækja í sérstaka töflu.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica