Fréttir

Skjálftahrina á Reykjaneshrygg

1.7.2015

Skjálftahrina sem hófst um kl. 21:00 í gærkveldi, þriðjudaginn 30. júní,  stendur enn.

Stærsti skjálftinn var 5,0 að stærð kl. 02:25 í nótt og fannst hann víða á Reykjanesskaga, á höfuðborgarsvæðinu og á Akranesi og einnig barst tilkynning frá skipi sem statt var um 10 km frá upptökum skjálftans. Nokkrir skjálftar eru á milli 4 og 5 að stærð og enn er unnið að yfirferð minni skjálfta. Þar sem skjálftarnir eru um 30 km frá landi, og þar af leiðandi utan mælakerfis Veðurstofu Íslands, þurfti að fá upplýsingar og gögn erlendis frá til þess að reikna stærðir stærstu skjálfta (frá evrópska netinu EMSC og frá GEOFON í Þýskalandi).

Á þriðja hundrað skjálftar hafa mælst síðan hrinan hófst þegar þetta er skrifað á tíunda tímanum. Samfelld virkni var frá kl. 21:00 í gærkvöldi til miðnættis en eftir það hefur virknin verið í hviðum með allt að tveggja til þriggja klukkutíma hléum á milli. Síðasta hviðan var um kl. 07:00 í morgun og síðan hefur verið rólegt.

Stærðir stærstu skjálftanna verða uppfærðar jafnóðum fram eftir degi, eftir því sem tími vinnst til.


Línurit (sjá vef) sem sýnir fjölda og styrk jarðskjálfta á Reykjaneshrygg. Óyfirfarnar frumniðurstöður.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica