Fréttir
Rauðir og gulbrúnir litir tákna hættulegasta vindinn. Sjá nýjustu kortin á vefnum.

Búist við ofsaveðri með suðurströndinni

3.12.2015

Búist er við stormi (meðalvindi yfir 20 m/s) á landinu síðdegis á morgun, föstudag, og ofsaveðri (meðalvindi yfir 28 m/s) við Öræfajökul, Mýrdalsjökul, Eyjafjöll og í Vestmannaeyjum.

Nánar um útlitið

Það er hæglætisveður á landinu í dag en á morgun, föstudag, syrtir í álinn, þegar djúp lægð (niður undir 940 mb) nálgast landið úr suðri. Búist er við ofsaveðri (meðalvindur yfir 28 m/s) síðdegis á morgun, föstudag, með suðurströndinni. Hviður geta farið yfir 50 m/s við Öræfajökul og undir Eyjafjöllum.

Úrkoma á þessum slóðum byrjar sem snjókoma, en færir sig yfir í slyddu með tilheyrandi krapa á vegum. Það verður því ekkert ferðaveður með suðurströndinni síðdegis á föstudag. Versta
veðrið verður syðst en það hvessir einnig annars staðar á landinu og undir kvöld verður víða orðið norðaustan hvassviðri eða stormur (15-23 m/s) með skafrenningi og síðar snjókomu þegar úrkomubakkinn færir sig norður yfir landið.

Athygli er einnig vakin á því að á laugardaginn er útlit fyrir norðan storm með stórhríð á norðanverðu landinu, en sunnanlands verða stöku él og skafrenningur. Austfirðir gætu sloppið framan af laugardegi í mun hægari vindi, en síðdegis á laugardag hvessir einnig þar með ofankomu. Að lokum er útlit fyrir að lægi mikið á sunnudag og létti til en þá má búast við talsverðu frosti.

Veðurfræðingar á vakt:
Elín Björk Jónasdóttir
Teitur Arason





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica