Fréttir
Landsmenn nýttu sér sólríkan maí í langþráða útiveru, t.d. að ganga á Helgafell þar sem þessi mynd var tekin. (Ljósmynd: Haukur Hauksson)

Tíðarfar í maí 2020

Stutt yfirlit

3.6.2020


Maí var óvenju þurr og sólríkur norðaustanlands. Hiti var alls staðar yfir meðallagi áranna 1961 til 1990 en um og yfir meðaltali síðustu tíu ára. Að tiltölu var hlýjast við strendur en kaldara inn til landsins. Þó nokkur snjór var á hálendinu.

Hiti

Meðalhiti í Reykjavík í maí var 7,1 stig og er það 0,7 stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990, en 0,2 stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhitinn 6,6 stig, 1,1 stigi yfir meðallagi áranna 1961 til 1990, en 0,2 stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára. Í Stykkishólmi var meðalhitinn 6,0 stig og 6,4 stig á Höfn í Hornafirði.

Meðalhita og vik á fleiri stöðvum má sjá í töflu.

stöð meðalhiti °C vik 1961-1990 °C röð af vik 2010-2019 °C
Reykjavík 7,1 0,7 41 150 0,2
Stykkishólmur 6,0 1,1 47 175 0,1
Bolungarvík 5,4 1,5 26 123 0,6
Grímsey 4,2 1,4 31 147 0,1
Akureyri 6,6 1,1 48 140 0,2
Egilsstaðir 5,7 0,9 29 66 0,2
Dalatangi 4,6 1,2 26 82 0,3
Teigarhorn 5,6 1,1 33 til 34 148 0,3
Höfn í Hornaf. 6,4


0,0
Stórhöfði 6,3 0,4 55 144 0,1
Hveravellir 1,4 0,8 28 56 -0,4
Árnes 6,5 0,4 59 141 -0,1

Meðalhiti og vik (°C) í maí 2020

Að tiltölu var hlýjast út við strendur en að tiltölu kaldast á miðhálendinu. Jákvætt hitavik miðað við síðustu tíu ár var mest 0,7 stig í Súðavík og í Bolungarvík. Neikvætt hitavik miðað við síðustu tíu ár var mest -1,1 stig í Þúfuveri.


Hitavik sjálfvirkra stöðva í maí miðað við síðustu tíu ár (2010–2019).

Meðalhiti mánaðarins var hæstur við Skarðsfjöruvita 7,5 stig en lægstur -2,0 stig á Gagnheiði. Á láglendi var meðalhitinn lægstur 2,9 stig á Fonti.

Hæsti hiti mánaðarins mældist 19,7 stig á Skjaldþingsstöðum þ. 29. Mest frost í mánuðinum mældist -12,3 stig á Gagnheiði þ. 10. Mest frost í byggð mældist -9,8 stig á Grímsstöðum á Fjöllum þ. 10.

Úrkoma

Þurrt var á Norðausturlandi en blautara sunnanlands.

Úrkoma í Reykjavík mældist 57,8 mm sem er 32% umfram meðallag áranna 1961 til 1990. Á Akureyri mældist úrkoman aðeins 6,6 mm sem er um þriðjungur af meðalúrkomu áranna 1961 til 1990. Í Stykkishólmi mældist úrkoman 31,1 mm og 51,2 mm á Höfn í Hornafirði.

Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meira í Reykjavík voru 11, einum fleiri en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoman 1,0 mm eða meiri 2 daga sem er þremur færri en í meðalári.

Snjór

Alautt var allan mánuðinn bæði í Reykjavík og á Akureyri, en töluverður snjór var á hálendinu.

Sólskinsstundafjöldi

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 210,6 sem er 18,6 stundum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 237,3, sem er 63,5 stundum fleiri en í meðalári.

Vindur

Vindur á landsvísu var 0,8 m/s yfir meðallagi. Hvassast var á landinu þ. 4 . (suðvestanátt).

Loftþrýstingur

Meðalloftþrýstingur í Reykjavík mældist 1014,9 hPa og er það 2,5 hPa yfir meðallagi áranna 1961 til 1990. Hæsti loftþrýstingur mánaðarins mældist 1033,3 hPa á Egilsstaðaflugvelli þ. 10. Lægstur mældist loftþrýstingurinn 989,8 hPa í Grindavík þ. 20.

Fyrstu fimm mánuðir ársins

Meðalhiti í Reykjavík var 2,4 stig sem er 0,5 stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990 en -0,6 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhitinn raðast í 45. til 47. sæti á lista 150 ára. Á Akureyri var meðalhiti mánaðanna fimm 1,5 stig. Það er 1,1 stigi yfir meðallagi áranna 1961 til 1990, en -0,4 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhitinn þar raðast í 34. sæti á lista 140 ára. Úrkoma hefur verið 20% umfram meðallag í Reykjavík, en 36% umfram meðallag á Akureyri.

Vorið (apríl og maí)

Hiti var yfir meðallagi sé miðað við 1961 til 1990 (vik miðað við síðustu tíu ár eru innan sviga). Hann var +1,0 stigi yfir í Reykjavík (+0,2), +1,4 stigum yfir á Akureyri (+0,2), +1,2 stigum yfir í Stykkishólmi (-0,1) og +1,0 stigi yfir á Egilsstöðum (0,0).

Í Reykjavík var úrkoman 30% umfram meðallag áranna 1961 til 1990. Í Stykkishólmi var úrkoman í meðallagi og á Akureyri var úrkoman 80% af meðalúrkomu áranna 1961 til 1990.

Skjöl fyrir maí

Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í maí 2020 (textaskjal).
Daglegt yfirlit mánaðarins á þremur ákveðnum veðurstöðvum er hægt að sækja í sérstaka töflu.










Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica