Veðurstofa Íslands 90 ára

mælar á grónu landi
© Elvar Ástráðsson
Írafoss í Grímsnesi. Veðurfarsstöð nr 956 frá 1972; mengunarmælistöð frá 1980. Fyrir miðju er úrkomumælir með vindhlíf en hitamælaskýli í forgrunni. Aftara skýlið hýsir loftdælur fyrir mengunarmælingar. Úrkomusafnari lengst til hægri og er úrkoman úr honum efnagreind.

Nýjar fréttir

Tíðarfar í apríl 2013

Aprílmánuður var kaldur á landinu. Kaldast var inn til landsins á norðaustan- og austanverðu landinu. Snjór var til ama víða norðan- og austanlands og norðantil á Vestfjörðum. Úrkoma var víðast hvar innan við meðallag. Sólskinsstundir voru óvenjumargar suðvestanlands.

Lesa meira

Meðalhiti íslenska vetrarins

Veturinn 2012 til 2013 var hlýr um landið sunnan- og vestanvert. Sérlega hlýtt var um miðbik hans, en þá náðu hlýindin um nær allt land. Kaldara var til beggja handa og um landið norðan- og austanvert. Snjór kom snemma í byggðir þar um slóðir og fer seint og telja menn tíðarfar hafa verið erfitt. Syðra var veður mjög hagstætt lengst af.

Lesa meira

Jarðskjálftar í mars 2013

Rúmlega 1000 jarðskjálftar mældust með SIL-mælakerfi Veðurstofu Íslands í mars. Stærsti skjálftinn var 3,8 stig með upptök í Eyjafjarðarál. Hann fannst á Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík og Húsavík.

Lesa meira

Veðurstofa Íslands - rannsóknastofnunin

Opinn ársfundur Veðurstofu Íslands var haldinn að Bústaðavegi 7 hinn 4. apríl. Dagskráin hófst með ávarpi ráðherra og kynningu forstjóra. Þrjú erindi voru flutt: Um rannsóknainnviði Veðurstofunnar, um snjó og samgöngur á norðurslóðum og um rannsóknir á vindauðlindinni. Fundurinn var vel sóttur.

Lesa meira

Jarðskjálftahrinan við Grímsey heldur áfram

Skjálftavirknin í Skjálfandadjúpi hefur færst bæði til norðvesturs og suðausturs af meginskjálftanum sem var af stærð 5,5 um eittleytið aðfaranótt 2. apríl. Tveir allsnarpir skjálftar fundust á Norðurlandi í gærkvöldi. Í nótt hafa margir skjálftar mælst milli 3 og 4 að stærð. Áfram má búast við skjálftum af svipaðri stærð á svæðinu.

Lesa meira



Aðrir tengdir vefir