Gildi
Gildi
Gildi Veðurstofunnar eru þekking, áreiðanleiki, samvinna og framsækni. Við höfum þau að leiðarljósi í vinnu okkar og samskiptum.
Þekking:
- Þekking á náttúrufari er forsenda fyrir farsælli sambúð lands og þjóðar. Við byggjum starf okkar á rannsóknum á náttúru landsins og þekkingu á fagsviðum Veðurstofunnar.
Áreiðanleiki:
- Til þess að miðla upplýsingum um náttúruvá á hættustund þarf áreiðanleg mæli- og viðvörunarkerfi. Við ávinnum okkur traust með fagmennsku og áreiðanleika.
Samvinna:
- Samvinna er forsenda skilvirkni. Við komumst að sameiginlegri niðurstöðu. Við erum samheldin og komum fram við aðra af heilindum.
Framsækni:
- Hagnýting nýrrar þekkingar og tækni kallar á framsækni og forystu. Við sköpum okkur framtíð með framsækni og forystu.
Mikilvægt er fyrir Veðurstofuna að draga fram þau megingildi sem í heiðri eru höfð í öllu starfi stofnunarinnar.


