Gæðamál
Gæðastefna Veðurstofu Íslands
Gæðastefna Veðurstofunnar nær til allra þátta í starfsemi hennar. Hún miðar annars vegar að því uppfylla samninga við umhverfisráðuneytið og hins vegar að því að vinna í samræmi við alþjóðlega staðla og reglur, þ.m.t. gæðastjórnunarkerfi eins og ISO 9001. Stofnunin leggur áherslu á eftirtalin gæðaviðmið:
- að fylgjast með og mæla reglulega ánægju viðskiptavina með þjónustu stofnunarinnar
- að standa við skuldbindingar varðandi gæði þjónustu, áreiðanleika og veitingu hennar á tilsettum tíma
- að tryggja að starfsmenn hafi hæfni og þekkingu til að sinna verkefnum stofnunarinnar á fullnægjandi hátt
- að allur nauðsynlegur búnaður sem þarf til að reka stofnunina, s.s. mælitæki, tölvubúnaður, upplýsingakerfi, aðbúnaður starfsmanna o.fl. uppfylli skilgreindar þarfir, gæðakröfur og gæðastaðla
- að rekstur stofnunarinnar sé eins hagkvæmur og unnt er og í samræmi við fjárheimildir og aðrar tekjur á hverjum tíma
- að vinna stöðugt að framförum, nýjungum og hagkvæmni í rekstri
- að reka virkt gæðastjórnunarkerfi samkvæmt ISO 9001


