• Viðvörun

    Búist er við stormi (meðalvindi meiri en 20 m/s) S- og A-lands síðdegis og víða um land í kvöld. Gildir til 08.02.2012 05:00 Meira
Smávirkjanir

Smávirkjanir

Veðurstofa Íslands annast stakar rennslismælingar og rekstur vatnshæðarmæla með tilheyrandi síritum víða um land. Stjórnvöld á Íslandi standa undir almennum grunnrannsóknum á vatnsauðlindinni, en hafi eigendur vatnsréttinda hug á að nýta hana þurfa þeir sjálfir að standa straum af kostnaði við mælingar sem þeir óska eftir. Til að lágmarka kostnað við slíkar mælingar er æskilegt að beiðni um þær berist til Veðurstofunnar snemma sumars þannig að hægt sé að framkvæma þær meðfram öðrum störfum í reglulegum eftirlitsferðum að hausti eða síðla vetrar.





Aðrir tengdir vefir


Þetta vefsvæði byggir á Eplica