Textaspá - Yfirlit

Hugleiðingar veðurfræðings

Hæð yfir Grænlandi og lægðasvæði norður af Bretlandseyjum beina til okkar hægt vaxandi norðaustanátt, víða 10-18 m/s síðdegis. Él á Norður- og Austurlandi og vægt frost, en yfirleitt þurrt og bjart um landið sunnanvert með hita að 5 stigum yfir daginn. Í kvöld bætir í vind undir Vatnajökli og þar má búast við hvössum vindstrengjum í nótt og fram eftir degi á morgun. Annars er litlar breytingar að sjá til morguns.

Allhvöss norðaustanátt á Páskadag og snjókoma eða él um landið norðanvert, en úrkomulítið sunnanlands. Frost 0 til 8 stig.
Spá gerð: 29.03.2024 06:33. Gildir til: 30.03.2024 00:00.

Veðuryfirlit

Yfir Grænlandi er kyrrstæð 1030 mb hæð. Yfir Bretlandseyjum er 968 mb lægðasvæði sem þokast NV.
Samantekt gerð: 29.03.2024 01:07.

Veðurlýsing


Samantekt gerð: 21.03.2024 05:25.

Veðurhorfur á landinu

Hægt vaxandi norðaustanátt, 10-18 m/s síðdegis. Él á Norður- og Austurlandi, en bjart að mestu um landið sunnanvert. Hvassara undir Vatnajökli í nótt og fram eftir degi á morgun.
Frost 0 til 6 stig, en frostlaust sunnantil yfir daginn.
Spá gerð: 29.03.2024 04:26. Gildir til: 30.03.2024 00:00.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu

Austlæg átt 3-8 m/s og léttskýjað, en gengur í norðaustan 8-15 síðdegis. Hiti 1 til 5 stig yfir daginn, en heldur svalara á morgun.
Spá gerð: 29.03.2024 04:36. Gildir til: 30.03.2024 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag:
Norðaustlæg átt, víða 10-18 m/s. Él norðan- og austanlands, en yfirleitt þurrt sunnan heiða. Vægt frost, en frostlaust sunnantil yfir hádaginn.

Á sunnudag:
Norðaustan 13-18 og snjókoma eða él, en þurrt að kalla um landið sunnanvert. Bætir heldur í vind síðdegis. Frost 0 til 8 stig.

Á mánudag:
Norðaustan 13-20 og él, en yfirleitt þurrt sunnanlands. Dregur úr vindi og úrkomu eftir hádegi. Hiti breytist lítið.

Á þriðjudag:
Fremur hæg breytileg átt og bjart með köflum. Frost 0 til 10 stig.

Á miðvikudag:
Breytileg átt og dálítil él norðan- og vestantil, annars þurrt að kalla. Hlýnar lítillega.

Á fimmtudag:
Austlæg eða breytileg átt og stöku él.
Spá gerð: 28.03.2024 20:59. Gildir til: 04.04.2024 12:00.


Textaspár eru skrifaðar af vakthafandi veðurfræðingi á Veðurstofu Íslands.




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica