Staðaspár -

Sýna flokk veðurstöðva

Finna spá fyrir veðurstöð

Stöðvalisti
 

Textaspá fyrir allt landið

Veðurhorfur á landinu

Fremur hæg austlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum og yfirleitt þurrt, hiti 4 til 12 stig að deginum.

Norðlæg átt 3-8 m/s á morgun og víða bjart sunnan- og vestanlands. Skýjað en úrkomulítið og kólnar heldur á Norður- og Austurlandi.
Spá gerð: 24.04.2024 09:48. Gildir til: 26.04.2024 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag:
Norðan 5-10 m/s. Léttskýjað sunnan- og vestanlands, annars skýjað og þurrt að kalla. Hiti 0 til 13 stig, hlýjast á Suðurlandi, en víða næturfrost.

Á laugardag:
Norðlæg átt, 5-10 m/s og dálítil snjókoma eða él á Norðaustur- og Austurlandi, en bjartviðri suðvestanlands. Hiti 0 til 8 stig yfir daginn, mildast syðst.

Á sunnudag og mánudag:
Norðaustlæg átt og stöku skúrir eða él, en lengst af léttskýjað suðvestantil. Hiti breytist lítið.

Á þriðjudag:
Útlit fyrir breytilega átt og að mestu bjart en stöku skúrir sunnantil.
Spá gerð: 24.04.2024 08:43. Gildir til: 01.05.2024 12:00.

Hugleiðingar veðurfræðings

Það er útlit fyrir hæglætisveður í dag, þurrt að mestu og milt. Heldur meira af skýjum en í gær, en ætti að sjást víða til sólar.

Snýst í norðlæga átt á morgun, 3-8 m/s. Skýjað og heldur svalara á norðanverðu landinu, en bjartara veður sunnan heiða með hita að 10 til 12 stigum þegar best lætur.

Það er skemmst frá að segja að á föstudag er spáð svipuðu veðri áfram.
Spá gerð: 24.04.2024 06:20. Gildir til: 25.04.2024 00:00.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica