Staðaspár -

Sýna flokk veðurstöðva

Finna spá fyrir veðurstöð

Stöðvalisti
 

Textaspá fyrir allt landið

Veðurhorfur á landinu

Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s, og bjartviðri, en skýjað með köflum á Norður- og Austurlandi og lítilsháttar snjómugga eða súld á köflum.

Norðan 5-13 á morgun, hvassast fyrir austan, og bætir í úrkomu um landið norðaustanvert annað kvöld.

Hiti yfir daginn frá 0 stigum austantil að 13 stigum suðvestantil.
Spá gerð: 25.04.2024 09:52. Gildir til: 27.04.2024 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag:
Norðlæg átt, 5-13 m/s, hvassast austast. Dálítil snjókoma eða él norðaustan- og austantil, en bjartviðri suðvestanlands. Hiti 0 til 9 stig yfir daginn, mildast syðst.

Á sunnudag og mánudag:
Norðaustan 5-13 m/s og skúrir eða él við suður- og austurströndina, en þurrt að kalla fyrir norðan. Hiti 5 til 10 stig að deginum sunnan- og vestanlands, en nærri frostmarki á Norður- og Austurlandi.

Á þriðjudag:
Norðvestlæg átt og dálítil él fyrir austan, en bjartviðri á Suður og Vesturlandi. Hiti breytist lítið.

Á miðvikudag:
Útlit fyrir suðvestlæga átt og þykknar upp vestanlands, en yfirleitt léttskýjað austanlands og hlýnar í veðri.
Spá gerð: 25.04.2024 08:54. Gildir til: 02.05.2024 12:00.

Hugleiðingar veðurfræðings

Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt í dag og bjart veður sunnan og vestanlands, þar getur hiti náð 13 stigum. Á Norður- og Austurlandi þykknar upp og er útlit fyrir heldur svalara veður en síðustu daga, hiti 0 til 7 stig að deginum.

Svipað veður á morgun, en þá bætir aðeins í vind og lítilsháttar él norðaustantil annað kvöld.

Á laugardag bætir í úrkomu um landið norðaustan- og austanvert, dálítil snjókoma eða él þar en áfram bjart sunnan- og vestantil. Kólnar aðeins í veðri.
Spá gerð: 25.04.2024 06:05. Gildir til: 26.04.2024 00:00.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica