Staðaspár -

Sýna flokk veðurstöðva

Finna spá fyrir veðurstöð

Stöðvalisti
 

Textaspá fyrir allt landið

Veðurhorfur á landinu

Gengur í sunnan 10-18 m/s með rigningu og súld, en úrkomuminna norðaustantil. Talsverð rigning á Vesturlandi seinnipartinn. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast fyrir norðan og austan.

Styttir upp í nótt og fyrramálið, suðvestan og vestan 8-15 á morgun og yfirleitt bjart, en 15-23 á norðanverðu landinu. Dregur úr vindi annað kvöld, hiti 4 til 11 stig, mildast syðst.
Spá gerð: 20.04.2024 04:53. Gildir til: 21.04.2024 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á mánudag og þriðjudag:
Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt og léttskýjað, en skýjað með köflum við vesturströndina. Hiti 4 til 12 stig, hlýjast á Suðurlandi.

Á miðvikudag:
Austan 3-8 m/s, en suðaustan 8-13 við suðvesturströndina. Víða bjartviðri, en skýjað með köflum við ströndina sunnantil. Hiti 5 til 10 stig vestanlands, en um frostmark fyrir austan.

Á fimmtudag og föstudag:
Útlit fyrir norðlæga átt og bjartviðri suðvestanlands, hiti 2 til 8 stig að deginum, en skýjað norðaustantil og stöku él, frost 0 til 6 stig.
Spá gerð: 20.04.2024 08:03. Gildir til: 27.04.2024 12:00.

Hugleiðingar veðurfræðings

Gengur í sunnan strekking eða allhvassan vind með súld eða rigningu sunnan- og vestanlands en úrkomuminna norðaustantil. Síðdegis bætir í rigningu, og verður talsverð rigning á Vesturlandi. Hiti víða 5 til 12 stig, hlýjast í hnúkaþey fyrir norðan og austan.

Samfara svona hlýindum ryðja ár og lækir sig gjarnan, en víða á norðurhelmingi landsins eru vatnsfarvegir ísilagðir. Stundum myndast klakastíflur sem geta valdið staðbundnum flóðum og jafnvel haft áhrif á vegi, ræsi og brýr. Sama á við ræsi og niðurföll í þéttbýli þar sem við á, þá þarf að hreinsa frá svo vatn komist greiðlega í burtu.

Í nótt og fyrramálið styttir upp, yfirleitt bjart á morgun og áttin er suðvestlægari. Á Norðurlandi verður suðvestan hvassviðri eða stormur á stöku stað, en hægari sunnantil. Um kvöldið dregur úr vindi. Kólnar aðeins í veðri.
Spá gerð: 20.04.2024 06:01. Gildir til: 21.04.2024 00:00.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica