Greinar
Hvalreki á Skagaströnd í janúar 1918
Hvalreki varð á Skagaströnd í janúar 1918, frostaveturinn mikla.

Kuldametið 1918

Kaldast á landinu 21. janúar 1918

Trausti Jónsson 6.12.2011

Í janúar 2012 eru liðin 94 ár frá því að kaldast var í Reykjavík og víðar á landinu frá því mælingar hófust.

Í Reykjavík mældist frostið 24,5 stig en á Grímsstöðum 36 stig og í Möðrudal 38 stig. Á nokkrum öðrum stöðvum mældist frostið um 30 stig.

Myndin sýnir hvalreka á Skagaströnd í janúar frostaveturinn mikla. Túlka má heimildir þannig að frost hafi síðustu 200 árin sennilega ekki orðið öllu meira hérlendis en varð í kastinu í janúar 1918. Mikil hæð var við landið í upphafi mánaðarins og mikill hafís fyrir Norðurlandi fram í febrúar. Aðalkuldakastið hófst um þrettándann. Framan af var heldur hvassviðrasamt en um 20. janúar var vindur orðinn hægur og þá urðu mestu kuldarnir á flestum stöðvum.

Nánar er fjallað um lægsta hita í Reykjavík og lægsta hita á Íslandi í fróðleiksgreinum Veðurstofu. Einnig eru hugleiðingar um bakgrunn kuldanna 1918 og hvort þeir geti endurtekið sig.

Eftir 1918 hefur hiti á veðurstöð aldrei farið niður fyrir -35°C. Mesta frost 21. aldarinnar til þessa er rétt rúm 30 stig. Á forsíðu veðurathugana má sjá mesta og minnsta hita dagsins á landinu hverju sinni (óyfirfarnar frumniðurstöður).





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica