Textaspá - Yfirlit

Veðuryfirlit

Á vestanverðu Grænlandshafi er 998 mb lægð sem hreyfist lítið en við Jan Mayen er vaxandi 1031 mb hæð sem þokast norðaustur.
Samantekt gerð: 19.05.2013 14:40.

Veðurlýsing

kl. 15 var suðaustan 8-15 m/s V-til, en norðan og austanlands var hægari suðlæg eða breytileg átt. Rigning um landið vestanvert, og skúrir á Suðurlandi en bjartviðri austan- og norðaustanlands. Hiti var 4 til 14 stig, svalast Fonti en hlýjast á Akureyri.
Samantekt gerð: 19.05.2013 15:53.

Veðurhorfur á landinu

Suðaustan 10-18 m/s V-til, en hægari suðlæg átt annars staðar. Súld eða rigning sunnan- og vestantil og bjartviðri um landið norðaustanvert. Snýst í suðvestan 8-15 m/s V- og S-til kvöld og nótt með skúrum en annars hægari og víða léttskýjað. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast á N- og A-landi, en kólnar heldur til morguns.
Spá gerð: 19.05.2013 15:51. Gildir til: 20.05.2013 18:00.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu

Suðaustan 8-15 m/s og rigning. Snýst í suðvestan 8-13 seint í kvöld með skúrum. Hiti 5 til 10 stig, en heldur svalara á morgun.
Spá gerð: 19.05.2013 15:51. Gildir til: 20.05.2013 18:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:
Vestan og norðvestan 5-13 m/s með skúrum eða slydduéljum, en þurrt suðaustanlands. Hiti 2 til 8 stig, hlýjast suðaustantil.

Á miðvikudag:
Norðvestan 10-18 m/s, hvassast með austurströndinni og lítilsháttar skúrir eða él norðanlands en hægari norðlæg átt annars staðar og léttir til. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast sunnanlands.

Á fimmtudag og föstudag:
Suðlægar áttir með rigningu og súld en yfirleitt þurrt um landið noðraustanvert. Hiti 4 til 12 stig, hlýjast norðaustanlands.

Á laugardag:
Vestan og síðar norðvestanáttir með skúrum norðan og vestantil en bjartviðri suðaustanlands. Hiti 4 til 10 stig.
Spá gerð: 19.05.2013 08:47. Gildir til: 26.05.2013 12:00.


Textaspár eru skrifaðar af vakthafandi veðurfræðingi á Veðurstofu Íslands.


Aðrir tengdir vefir