Hægt vaxandi norðaustanátt, 10-18 m/s síðdegis. Él á Norður- og Austurlandi, en þurrt og bjart um landið sunnanvert. Hvassara í vindstrengjum undir Vatnajökli kvöld og á morgun.
Frost 0 til 6 stig, en frostlaust sunnantil yfir daginn.
Spá gerð 29.03.2024 11:02
Textaspáin gildir ef munur er á textaspá og sjálfvirkum spám!
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Óyfirfarnar frumniðurstöður
Stærð | Tími | Gæði | Staður |
---|---|---|---|
2,7 | 27. mar. 18:47:10 | Yfirfarinn | 6,5 km ANA af Bárðarbungu |
1,9 | 28. mar. 18:23:40 | 90,0 | 4,0 km SSA af Herðubreið |
1,8 | 27. mar. 21:34:37 | 72,0 | 9,1 km NNA af Goðabungu |
Eldgos á Sundhnúksgígaröðinni
Eldgosið við Sundhnúksgíga hefur haldist stöðugt síðasta sólarhringinn. Áfram er virkni í þremur gígum og lítil skjálftavirkni mælist á svæðinu.
Sjá frétt á forsíðu
Upplýsingar um gasdreifingarspá má
sjá hér
Skrifað af vakthafandi jarðvísindamanni 27. mar. 13:48
Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það. Meira
Vatnsfall | Staður | Rennsli | Vatnshiti |
---|
Vegna bilunar höfum við þurft að slökkva á þjónustunni sem birtir mælistöðvar. Hægt er að nota
Rauntímavöktunarkerfi í staðinn
Skrifað af vakthafandi sérfræðingi 08. mar. 14:06
Spáin gildir fyrir stór landsvæði og þarf því ekki að vera lýsandi fyrir byggð.
Landshluti | fös. 29. mar. | lau. 30. mar. | sun. 31. mar. |
---|---|---|---|
Suðvesturhornið
|
|||
Norðanverðir Vestfirðir
|
|||
Tröllaskagi utanverður
|
|||
Eyjafjörður innanverður (tilraunaverkefni)
|
|||
Austfirðir
|
Há gildi brennisteinsdíoxíðs (SO2) mældust í skamma stund í Grindavík í nótt (allt upp í 9000 míkrógrömm/m3) en þau lækkuðu fljótt aftur niður í eðlileg gildi. Há gildi brennisteinsdíoxíðs (SO2) mældust í Bláa lóninu og í Höfnum í gær.
Lesa meira
Í gær varð skjálftahrina í norðvesturhluta Öskju og mældust tæplega 30 skjálftar frá kl. 8 um morguninn til hádegis. Stærsti skjálftinn mældist 3,5 að stærð og varð á um 5 km dýpi. Einnig mældust þrír skjálftar frá 2,0 til 2,5 að stærð, en aðrir skjálftar voru minni. Jarðskjálftavirkni hefur lítið breyst á milli mánaða og verið nokkuð stöðug undanfarið þar til í gær. Síðast mældust skjálftar yfir 3 að stærð í janúar 2022 og október 2021.
Lesa meiraÍ dag er haldið upp á alþjóðlegan dag veðurs undir yfirskriftinni „í framvarðarsveit loftlagsaðgerða“ (e. At the frontline of climate action) Í ár er lögð áhersla á að loftslagsbreytingar eru sannarlega að eiga sér stað og ógna gjörvöllu samfélagi manna. Áhrifin eru þegar sýnileg og munu verða enn verri ef ekki er brugðist við þegar í stað.
Lesa meiraPáll fæddist í Fljótstungu í Hvítársíðu 13. ágúst 1923. Hann stundaði nám í Héraðsskólanum í Reykholti frá 1939 til 1941 og lauk síðan stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1944. Að loknu tveggja ára námi í verkfræði við Háskóla Íslands hélt hann til Svíþjóðar 1947 og stundaði nám í veðurfræði við Sveriges Meteorologiska och Hydrologiska Institut (SMHI) í Stokkhólmi og lauk þar prófi 1949. Hann stundaði frekara nám og rannsóknir í veðurfræði við Stokkhólmsháskóla frá 1953 og lauk fil.kand.-prófi 1955. Á árinu 1958 dvaldist hann í Osló í nokkra mánuði við rannsóknir til undirbúnings tveggja daga veðurspáa. Þá vann hann við rannsóknir á spáaðferðum við Reiknimiðstöð evrópskra veðurstofa (ECMWF) í Reading í Bretlandi hálft árið 1980.
Heim kominn frá veðurfræðinámi 1949 hóf Páll störf sem veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands en hann hafði áður starfað þar sem aðstoðarmaður frá 1946 til 1947 og sumarið 1948. Meginverkefni hans á stofnuninni allt til 1982 sneru að almennri veðurspáþjónustu og flugveðurþjónustu. Hann var deildarstjóri veðurfræðirannsókna frá 1982 til 1989. Árið 1989 var Páll skipaður veðurstofustjóri frá 1. október og gegndi því embætti til ársloka 1993, þá sjötugur að aldri.
Lesa meiraVeðurstofa Íslands og Háskóli Íslands endurnýjuðu samstarfssamning sinn um nám, kennslu og rannsóknir þann 15. mars. Samningurinn tekur mið af fyrri samningum en meðal helstu breytinga er aukin áhersla á samstarf um doktorsnám á fagsviðum Veðurstofunnar, sem eru m.a. veður, loftslag, jarðhræringar, jöklar, ofanflóð og auðlindir. Aðilar samningsins munu vinna að sameiginlegri stefnumótun um vísindi og rannsóknarstörf með það í huga að efla akademískt rannsókna- og vísindastarf og styrkja lögbundið hlutverk Veðurstofu Íslands.
Lesa meiraÞann 22. mars ár hvert halda Sameinuðu þjóðirnar upp á Alþjóðlegan dag vatnsins. Í ár er þema dagsins „Water for Peace“ sem gæti útlagst á íslensku „Vatn á myllu friðar“.
Aðeins um 0,5% af vatni á jörðinni er aðgengilegt og drykkjarhæft og býr um helmingur jarðarbúa við vatnsskort einhvern hluta ársins. Þessi dýrmætasta auðlind jarðar fer minnkandi með hverju árinu og eiga loftslagsbreytingar stærstan þátt í þessari hnignun. Á sama tíma fjölgar jarðarbúum og samfélög breytast svo að ásælni í vatn eykst sífellt. Þessar breytingar munu hafa miklar áskoranir í för með sér hvað varðar framboð á matvælum enda er talið að rúmlega 70% af öllu aðgengilegu ferskvatni sé að meðaltali notað í landbúnaði.
Lesa meiraFyrir rúmum fimm árum, í júlí 2007, sáust sveipir á Skeiðarársandi sem minntu á þá illræmdu skýstrokka sem oft er getið í fréttum og valda ótrúlegu tjóni þar sem þeir fara um.
Lesa meira