Hafísverkefni Veðurstofu Íslands, þjónusta og rannsóknir |
![]() |
Ískönnun, gagnaöflun og gagnavistun: Veðurstofan tekur á móti tilkynningum um hafís og miðlar þeim áfram til sjófarenda og annarra sem á þurfa að halda. Samstarf er við Landhelgisgæslu Íslands um ískönnun úr lofti. Unnið er að uppbyggingu gagnasafns um hafís og bættri miðlun hafísupplýsinga. Alþjóðlegt samstarf er um margs konar hafísrannsóknir, t.d. um rannsóknir á víxláhrifum hafs og lofts í norðurhöfum.
Helstu markmið:
Hafístilkynningar berast einkum frá sjófarendum, Landhelgisgæslu Íslands og veðurathuganastöðvum við ströndina, en auk þess nýtast veðurtunglamyndir við mat á meginútbreiðslu hafíss í Grænlandssundi.
Þjónusta og útgáfa: Frekari upplýsingar um hafísþjónustu Veðurstofu Íslands veita Sigþrúður Ármannsdóttir fulltrúi, og Ásdís Auðunsdóttir verkefnisstjóri hafísrannsókna. Upplýsingar um ársritið "Hafís við strendur Íslands" veitir Sigþrúður Ármannsdóttir.