Haf- og  borgarístilkynningar 2007

Heimasíða Veðurstofu Íslands
Heim - Ískort Landhelgisgæslunnar - Skýrsla Landhelgisgæslunnar - Ískort frá dönsku veðurstofunni - Ískort-skipatilkynningar - Hafístilkynningar - Ískortasafn - Mánaðayfirlit - Erlendar hafíssíður - English - hafis@vedur.is

30-05-2007 kl. 10:32 Skip

Ís: 6725,3N 02332,2W þaðan í  6730,8N 02314,9W, þéttur ís.   Vestur og norðvestur úr þessu er mikill ís.  Ís á Kögurgrunni 6656N 02251,6V liggur í austur 6658,7N  02235,8 V.  Liggur þaðan vestur í punkt 6702N 02306,5V þaðan í vestur í 6709,4N 02317,9V.  Þoka á svæðinu.

17-05-2007 kl. 10:14 Skip

kl. 10:14 komum að ísrönd í 6722N 02402W þaðan í réttvísandi 33 gáður í stað 6730N 02350W og þaðan liggur hann í 60 gráður réttvísandi frá skipinu. Þéttur ís. Sést vel í radar.

04-05-2007  Landhelgisgæslan

Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SYN tilkynntil um ísrönd NV af Vestfjörðum. Sjá skýrslu landhelgisgæslunnar..

20-04-2007 kl. 11:03 Skip

Statt á 66°25'N og 19°01' V. Sá þétta ísspöng 5 sml   norður af okkur. Virtist autt austan og vestan við ísspöngina.

16-04-2007  Landhelgisgæslan

Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SYN fór í ískönnunarflug úti fyrir Vestfjörðum. Sjá skýrslu landhelgisgæslunnar..

12-04-2007  Landhelgisgæslan

Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SYN fór í ískönnunarflug úti fyrir Vestfjörðum. Sjá skýrslu landhelgisgæslunnar..

27-03-2007  Landhelgisgæslan

Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SYN fór í ískönnunarflug úti fyrir Vestfjörðum. Sjá skýrslu landhelgisgæslunnar..

26-02-2007  Landhelgisgæslan

Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SYN fór í ískönnunarflug úti fyrir Vestfjörðum. Sjá skýrslu landhelgisgæslunnar..

10-02-2007 kl. 01:41 Skip

Skip sem er á út leið frá Húsavík tilk . um töluvert af krapaís og íshrafl sem gæti orðið hættulegt og til trafala fyrir minni báta. Ís er á svæðinu frá 66-06N 017-23W til Norðurs að 66-11N 017-11W. Eins virðist íshraflið vera allþétt A-við Lundey.

08-02-2007 kl. 13:40 Bjarni Sæmundsson

Komum að ísspöng, þéttleiki 5/10, á stað 6604N 02655V.  Ísspöngin liggur í norðaustur frá skipinu. 

06-02-2007  Landhelgisgæslan

Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SYN fór í ískönnunarflug úti fyrir Vestfjörðum og Norðurlandi. Sjá skýrslu landhelgisgæslunnar..

30-01-2007 kl. 18:00 Skip

Á siglingaleiðinni fyrir Horn sást ísbrúnin í norðri og lá í vestur. 

29-01-2007 kl. 12:20 Skip 

Tilkynnir um ís útaf Önundarfirði: Ísspöng 100 til 150 metra breið (liggur með landinu) 0,3 sjómílur útaf Sauðanesi við Önundarfjörð.  Erum komnir út fyrir spöngina á 66.08N 23.42,49V.  Veður: golu-kaldi.  Íshrafl og jakar og sést misjafnlega vel í radar.  Hættulegt skipum.

29-01-2007 kl. 10:45 Skip

Tilkynnir um ís á svæði 66.07N 23.43V. Jakar á þessum stað liggja til suðvesturs og norðvesturs.  Stórir jakar eru inn á milli og geta verið hættulegir skipum.  Veður: Kaldi á svæðinu og slæmt skyggni.

28-01-2007

Þyrla landhelgisgæslunnar TF-LÍF fór í ískönnunarflug úti fyrir Vestfjörðum. Sjá skýrslu landhelgisgæslunnar.

27-01-2007 kl. 16:20 Skip

Á siglingu frá um 12 sml. VNV af Blakk að Barða sást enginn ís fyrr en komið var norður á móts við Svalvoga.  Íshrafl á siglingaleiðinni frá Fjallaskaga að Deild.  Varasamt fyrir smábáta.  Stakir jakar á siglingaleiðinni frá Ísafjarðardjúpi og sumir eru varasamir öllum skipum.  Ísrastir eru í Ísafjarðardjúpi. Veður: Breytileg átt 5-10 m/s, lítilsháttar súld og ágætt skyggni.

27-01-2007 kl 12:27 Skip

Urðum varir við nokkra ísjaka út af Aðalvík, gisin ísspöng við mynni ísafj.djúps að vestanverðu sem liggur að Stigahlíð að Ófæru og þaðan norður út í mitt djúp. Gæti verið hættuleg minni bátum.  

27-01-2007 kl. 11:55 Skip

Siglingaleiðin frá Horni að Sauðanesi er auð.  Þar komum við að þunnri spöng á stað

66.07,8N 23.41,5V sem liggur SV-NA.  

27-01-2007 kl. 06:30 Skip

Statt á 66.12,93N 23.21,00V: Stakir jakar og íshrafl undir Stigahlíð. Stórir jakar inn á milli. 

26-01-2007 kl. 21:20 Skip 

Silgdum meðfram þéttri ísspöng frá miðri Aðalvík vestur fyrir Ryt.  Lítið skyggni á þessum slóðum.  Ísspöngin er nú fjögur til fimm hundruð metra undan Ryti. Ísinn er um eina sjómílu frá Straumnesi.  

26-01-2007 kl. 15:00    Sjónarvottur í Dýrafirði:

Íspöng líklega komin inn að landi fram af Sléttanesi.  Þétt spöng sem minni bátar fara líklega ekki í gegn.  Sér aðra spöng utar, vestur af barðinu í sjónauka.

26-01-2007 kl. 15:00  Veðurathugunarstöðin á Hólum í Dýrafirði:

Hafís sést í fjarðarminninu, um það bil 12-15 km frá Hólum. Sjá myndir frá veðurathuganafólki (teknar 27. janúar).

26-01-2007 kl. 14:10  Skip 

Ísspöng á stað 66.05N 24.21V, liggur í norður og vestur, finnst vera meiri ís lengra bak við en sér ekki vel. Stakir ísmolar á reki til lands. 

26-01-2007 kl. 09:45  Skip 

Statt á 66.23N 23.25V tilkynnir:  Þétt ísspöng austur og norður af okkur, liggur austur með kantinum á hraðri uppleið (líklega norðurleið).

26-01-2007 kl. 05:20  Skip 

Sigldum fram hjá ísspöng suðurendi 66.21N 23.33V þaðan liggur hún í norður. Íshrafl út og vestur af þessu svæði.  Ísspöngin sést nokkuð vel í radar.

Ísröndin er að færast nær landi. 

26-01-2007 kl. 01:07  Skip 

Tilkynning um ís: var kl. 23:50 8 mílur NV af Kóp. sáum skarpa ísrönd í radar sem liggur um eftirfarandi punkta:  

1) SV-asti punkturinn: 65.44N 24.26V 

2)  65.47N 24.22V

3) 65.55N 24.18V 

4) Nyrsti punktur: 65.56N 24.16V og þaðan norður úr þeim punkti.  

Ísinn virtist reka í SA, eða um 100 gráður.  

25-01-2007 kl. 21:50  Skip 

Statt NV af Straumnesi: Erum við íshrafl á stað  

1) 66°35’N 023°30’V  

2) 66°29’N og 023°38V.  

25-01-2007 kl. 15:12  Skip

Statt 65°49’,5N 024°.59’.2V: erum að koma að ísmolum og ísbreiðu/spöng. 

Skyggni nokkuð gott. 

25-01-2007 kl. 14:30  Skip:

Statt á 65.54N 024.38V: hafa fylgt íshrafli og eða ísbreiðu eftir sem liggur til N og NV frá þessum stað en síðan til SV.  Ísbreiðan er í um 4,8 sml. fjarlægð frá skipinu. Skyggni gott.

25-01-2007 kl. 14:20  Skip  

Statt á 65.48N 025.00V: Erum á N-stefnu. Sé ekki ís til vesturs, enn ísspöng er norðaustur frá okkur séð. 

24-01-2007 kl. 08:31   Skip

Tilkynnir um ís á stað 65.59N 02523.81V og vestur af því.  Ísinn er bara hrafl eða niðurbrot.  Sést ekki í radar.  Veður: nú er SV hægur vindur.  Gæti verið hættulegt skipum.

13-01-2007  Landhelgisgæslan
Ísröndin lá á milli eftirfarandi hnita: :
1) 66°50'N    027°45'V        2) 66°17'N    028°12'V
3) 66°00'N    028°49'V        4) 65°51'N    029°30'V

þéttleiki 4-8/10.  Á milli 67°00'N - 25°20'Vog  66°35'N - 27°20'V var ís í myndun.  Ísröndin næst landi 100 sml. VNV af Barða.