Veðurstofa Íslands - Óstöðugar hlíðar
Svínafellsheiði
áherslur á að kortleggja og rannsaka óstöðugar hlíðar víðsvegar um landið.
Samfara rannsóknum og kortlagningu hefur svæðum verið að fjölga sem verið er að
landinu sem er vaktað með síritandi mælitækjum sem gefur kost á 24 klst vöktun.
Mælitækjum var komið fyrir í hlíðina ofan við austanverðan Svínafellsjökul
haustið 2018, eftir að niðurstöður úr kortlagningu og mælingum í samstarfi við
Háskóla Íslands leiddu í ljós að um 1,7 km langa sprungu væri að finna í
fjallshlíðinni. Sprungu sem að rekja má frá yfirborði jökulsins í 300 m h.y.s.
og upp á efsta hluta heiðinnar í um 850 m h.y.s. Af ummerkjum að dæma var ljóst
að sprunga þessi væri frekar nýlega og hafði myndast á síðustu 10-15 árum og að
hreyfingar hefðu verið um sprunguna á síðustu árum. Rannsóknir benda til þess
að hér sé um að ræða 60-100 milljón rúmmetrar af efni sem gætu hlaupið út á
Svínafellsjökul og mögulega náð ofan í lónin fyrir framan jökulinn. Atburðir af
þessari stærðargráðu eiga sér gjarnan aðdraganda sem vonast er að hægt sé að