Austlæg eða breytileg átt 3-8 m/s, en suðaustan 8-13 vestast á landinu með kvöldinu. Skýjað að mestu og úrkomulítið, en skýjað með köflum fyrir norðan. Skúrir vestantil á landinu í nótt og á morgun, en bjartviðri norðaustanlands. Hiti 2 til 8 stig, en víða næturfrost norðan- og austanlands.
Spá gerð 12.10.2019 18:23
Textaspáin gildir ef munur er á textaspá og sjálfvirkum spám!
| Láglendi | |
|---|---|
| Hálendi | |
|---|---|
| Láglendi | |
|---|---|
| Hálendi | |
|---|---|
| Láglendi | |
|---|---|
| Hálendi | |
|---|---|
| Láglendi | |
|---|---|
| Hálendi | |
|---|---|
| Láglendi | |
|---|---|
| Hálendi | |
|---|---|
| Láglendi | |
|---|---|
| Hálendi | |
|---|---|
Óyfirfarnar frumniðurstöður
| Stærð | Tími | Gæði | Staður |
|---|---|---|---|
| 2,3 | 11. okt. 10:24:06 | Yfirfarinn | 26,1 km ASA af Grímsey |
| 1,7 | 10. okt. 22:02:58 | 82,7 | 15,1 km V af Herðubreiðarfjöllum |
| 1,6 | 12. okt. 12:44:50 | Yfirfarinn | 21,0 km N af Hveravöllum |
| 1,3 | 12. okt. 12:34:35 | Yfirfarinn | 20,8 km N af Hveravöllum |
| 1,2 | 12. okt. 02:03:29 | Yfirfarinn | 12,2 km N af Geysi |
| 1,1 | 10. okt. 22:01:35 | 63,4 | 6,4 km ANA af Hestfjalli |
Tæplega 220 jarðskjálftar voru staðsettir með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands í vikunni, færri en í vikunni á undan þegar um 260 skjálftar voru staðsettir. Stærstu skjálftar vikunnar voru í Bárðarbungu öskjunni, 3,8 að stærð þann 4. október kl. 16:31 og 3,1 að stærð kvöldið áður kl. 20:33. Þeim fylgdu örfáir eftirskjálftar. Aðfaranótt 30. september kl. 02:48 mældist skjálfti um þrjá km VSV af Geitlandsjökli og var hann 2,3 að stærð. Meira
| Vatnsfall | Staður | Rennsli | Vatnshiti |
|---|---|---|---|
| Norðurá | Stekkur | 6,5 m³/s | |
| Austari Jökulsá | Skatastaðir | ||
| Jökulsá á Fjöllum | Grímsstaðir | 216,1 m³/s | 2,5 °C |
| Eldvatn | Eystri-Ásar | 56,0 m³/s | |
| Ölfusá | Selfoss | 298,4 m³/s | 7,0 °C |
Snjóflóðavakt á Veðurstofunni er nú lokið fyrir þetta tímabil. Snjóflóðavakt hefst á ný þann 15. október 2019.
| Landshluti | Barst ekki | Barst ekki | Barst ekki |
|---|---|---|---|
|
Suðvesturhornið (tilraunaverkefni)
|
|
|
|
|
Norðanverðir Vestfirðir
|
|
|
|
|
Utanverður Tröllaskagi
|
|
|
|
|
Austfirðir
|
|
|
|
September var hlýr og úrkomusamur. Óvenju hlýtt var síðustu viku mánaðarins og veður með besta móti. Mánuðurinn var sérlega úrkomusamur um landið vestanvert. Miklar rigningar voru á Vesturlandi dagana 18. til 20. Vatnavextir í ám og skriðuföll ollu talsverðum skemmdum og trufluðu samgöngur á svæðinu.
Lesa meira
Rafleiðni hefur hækkað jafnt og þétt síðustu tvo daga í Múlakvísl og er nú um 260 míkróS/cm. Mikið vatn er í ánni miðað við árstíma en þó minna en hámarks sumarrennsli. Hlaup af þessari stærðargráðu eru vel þekkt í Múlakvísl. Mikil gasmengun fylgir hinsvegar hlaupinu að þessu sinni. Veðurstofan er með gasmæli við Láguhvola sem erum um 2 km frá jökuljaðri Kötlujökuls. Þar mældist í nótt hæsta gildi brennisteinsvetnis (H2S) um 20 ppm, sem er yfir heilsuverndarmörkum. Því er varhugavert að staldra við nálægt ánni eða vera nálægt upptökum hennar við jökuljaðarinn.
Lesa meira
Í dag var tilkynnt um aukna vöktun Veðurstofu Íslands á jöklum á Íslandi undir heitinu „Hörfandi jöklar“. Alls verður 15 milljónum króna varið í vöktunina í ár og samtals 21 milljón króna frá og með næsta ári. Afkomureikningar fyrir jökla hér á landi verða einnig bættir sem mun t.d. gefa kost á birtingu daglegra upplýsinga um ákomu, leysingu og afkomu þeirra. Þá verður unnið gagnasafn um útbreiðslu íslenskra jökla og miðlun upplýsinga og myndræn framsetning bætt.
Lesa meira
Hlýnun á norðurskautssvæðinu hefur verið meira en tvöfalt hraðari en að meðaltali á jörðinni á síðustu tveimur áratugum. Þessa mögnun hlýnunar má að hluta rekja til samdráttar hafíss og snjóþekju á sama tíma. Á komandi árum og áratugum munu jöklar enn hörfa víðast hvar og snjóhula að vetri endast skemur. Matvælaöryggi og skilyrði til búsetu á norðurskautssvæðinu munu breytast. Breytinga er að vænta á náttúruvá, m.a. á flóðum í ám, snjóflóðum, skriðuföllum og vandamálum vegna óstöðugra jarðlaga, sem gera má ráð fyrir að hafi áhrif á innviði, ferðamennsku og aðstæður til útivistar.Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu IPCC, milliríkjanefndar um loftslagsbreytingar, sem kom út í dag.
Lesa meiraÁgúst var fremur kaldur um land allt, sérstaklega um landið norðan- og norðaustanvert. Á landsvísu hefur ágústmánuður ekki verið eins kaldur síðan árið 1993. Þurrt og bjart var um landið sunnan- og vestanvert en blautara norðaustanlands. Norðaustlægar áttir voru ríkjandi.
Lesa meira
Sérfræðingar Veðurstofunnar tóku þátt í íbúafundi á Seyðisfirði í gær til að kynna nýtt ofanflóðahættumat fyrir Seyðisfjarðarbæ. Tilefni endurskoðunar fyrra mats frá 2002 er að nýjar jarðfræðirannsóknir sýna að stórar, forsögulegar skriður hafa fallið yfir svæðið þar sem suðurhluti Seyðisfjarðarbæjar stendur nú. Nýja matið kallar meðal annars á varnaraðgerðir fyrir íbúðabyggðina í suðurbænum.
Lesa meira
Jafndægur eru tvisvar á ári, um 20.-21. mars og 22.-23. september. Tímasetningin hnikast örlítið milli ára, eftir því hvernig stendur á hlaupári. Vorjafndægur 2010 eru 20. mars kl. 17:32.
Lesa meira