Á virknitímabilum eins og verið hefur frá 1996, er algengt að 5-10 ár séu milli gosa í Grímsvötnum. Síðast gaus þar 2011 og var það nokkuð stórt og kröftugt gos. Á þeim tíma sem liðinn er frá gosinu benda mælingar til þess að kvika hafi safnast fyrir og þrýstingur í kvikuhólfi aukist. Í síðustu viku mældu starfsmenn Veðurstofunnar SO2 í suðvesturhorni Grímsvatna, nærri þeim stað þar sem gaus 2004 og 2011. „Þetta er í fyrsta sinn sem SO2 mælist í svo miklu magni í eldstöð á Íslandi án þess að eldgos sé í gangi og er vísbending um grunnstæða kviku“, segir Melissa Anne Preffer, sérfræðingur á Veðurstofu Íslands sem var einn leiðangursmanna sem fór á Vatnajökul á dögunum. Melissa segir að til viðbótar við aukið magn SO2, fari svæðið þar sem jarðhiti á yfirborði mælist stækkandi.
Lesa meiraSnjóalög eru undir meðaltali á Hofsjökli við vetrarlok í ár. Þetta er niðurstaða árlegs vorleiðangurs sérfræðinga á Veðurstofu Íslands. Aðeins á norðanverðum Hofsjökli náði snjóþykkt langtímameðaltali. Þynnst var snjólagið 1.2 m á norðanverðum Sátujökli og neðst á Blautukvíslarjökli en þykkast 5.7 m á hábungunni í 1790 m hæð. Metþykkt mældist þar 8.1 m vorið 2012 og meðaltalið frá upphafi mælinga 1988 er 6.5 m.
Lesa meira
Samkvæmt nýjustu gögnum eru vísbendingar um að landris sé hafið að nýju við Þorbjörn. Vísindamenn á Veðurstofu Ísland ásamt vísindamönnum á Jarðvísindastofnun og ÍSOR hafa fylgst vel með þróun mála á Reykjanesskaga og safna og vinna úr gögnum. Vísindaráð Almannavarna mun koma saman miðvikudaginn 10. júní til að fara yfir gögn og leggja mat á stöðuna.
Lesa meira
Maí var óvenju þurr og sólríkur norðaustanlands. Hiti var alls staðar yfir meðallagi áranna 1961 til 1990 en um og yfir meðaltali síðustu tíu ára. Að tiltölu var hlýjast við strendur en kaldara inn til landsins. Þó nokkur snjór var á hálendinu.
Lesa meira