Vindpokar eða vindsokkar eru notaðir á flugvöllum til að gefa flugmönnum sjónræna vísbendingu um stefnu og styrk vinds í flugtaki og lendingu. Vindpokar geta verið í mörgum litum en hér á landi er heillitaður appelsínugulur poki í notkun eða röndóttur, hvítur og appelsínugulur.
Lesa meiraÍ tilefni af uppsetningu veðursjár á Austurlandi fyrr á árinu býður Veðurstofa Íslands til athafnar við veðursjána þar sem hún er staðsett við Teigsbjarg á Fljótsdalsheiði, miðvikudaginn 12. september. Árni Snorrason forstjóri tekur veðursjána formlega í notkun kl. ellefu og síðan verður boðið til hádegisverðar á Skriðuklaustri, þar sem byggingarsaga veðursjárinnar verður sögð í máli og myndum.
Lesa meira
Talsvert jarðvegs- og öskufok getur verið á sunnanverðu landinu í norðanátt. Ýmis mælitæki sýna þetta.
Ljóssjá, sem mælir bæði endurskin loftagna og Doppler hrif sem stafa af hreyfingu þeirra, gerir það kleift að mæla vindhraðabreytingar í sniði frá yfirborði upp í um 200 m hæð. Þetta býður upp á víðtækari mælingar á vindhraða en áður hafa verið gerðar á Íslandi.
Lesa meira