Skýringar við sólargang
Sólskin á jörðina
Myndirnar sýna hvar sólin skín á jörðina, og hvernig tunglið lítur út
séð frá jörðu. Myndirnar eru fengnar með leyfi
frá www.fourmilab.ch.
Sólargangur á Íslandi
Sólargangur er sýndur fyrir nokkra staði á landinu. Notuð er sama skilgreining
á hugtökum og í Almanaki Háskólans (bls. 3):
"... telst dögun þegar sólmiðjan á uppleið er 18° undir sjónbaug
(láréttum sjóndeildarhring) og dagsetur þegar sól er jafnlangt undir
sjónbaug á niðurleið. Er þá himinn aldimmur yfir athugunarstað.
Birting og myrkur reiknast þegar sólmiðjan er 6° undir sjónbaug,
en það er nálægt mörkum þess að verkljóst sé úti við.
Sólris og sólarlag telst þegar efri rönd sólar sýnist vera
við sjónbaug og er þá reiknað með að ljósbrot í andrúmslofti nemi 0,6°.
Hádegi er þegar sólmiðjan er í hásuðri. ... Sólarhæð ...
er hæð sólmiðju yfir sjónbaug á hádegi, og er ljósbrot þá meðreiknað."
Miðnætti er þegar reiknuð staða sólmiðju er í hánorður. Klukkan
24:XX og 25:XX vísar til þess að klukkan sé 00:XX eða 01:XX daginn eftir.
Sólargangur fyrir aðra daga
Unnt er að slá inn dagsetningu ár-mánuður-dagur (ÁÁÁÁ-MM-DD) og fá
yfirlit um sólargang þann dag. Þetta gildir fyrir árin 2000 - 2100.
Tunglið í Reykjavík
Sýnd er mynd af tunglinu eins og það lítur út núna, séð frá jörðu.
Þá eru upplýsingar um tunglfasa í núverandi mánuði.
Að lokum er tafla sem sýnir aldur tunglsins (dagar frá nýju tungli),
tímasetningar á tunglrisi, tunglsetri og hvenær tunglið
er í suðri séð frá Reykjavík fyrir hvern dag mánaðarins.
Stundum er tunglið undir sjónbaug allan sólarhringinn og tveimur vikum síðar
er það gjarnan á lofti allan sólarhringinn. Þetta fyrirbæri stendur í 2-3 ár
á 18-19 ára fresti.
Hér er einnig unnt að slá inn ár-mánuð (ÁÁÁÁ-MM) efst til hægri og fá
yfirlit um tunglið í öðrum mánuðum. Þetta gildir fyrir árin 2000 - 2100.
Reikningar
Til að reikna sólargang eru notuð forrit eftir Harald Auðunsson og
Þórð Arason. Byggja reikningarnir m.a. á:
Van Flandern, T. C. & K. F. Pulkkinen (1979),
Low-precision formulae for planetary positions,
The Astrophysical Journal Supplement Series, 41, 391-411,
doi:10.1086/190623.
Gögn um tunglið voru fengin af vef bandaríska sjóhersins
https://aa.usno.navy.mil/
Þórður Arason, 28. desember 2005
|