Sérfræðingur í eldfjallagasi - Vöktun eldfjalla
Veðurstofa Íslands leitar að sérfræðingi á sviði eldfjallagass og vöktunar á eldfjallavá í andrúmslofti. Um er að ræða fullt starf á þjónustu- og rannsóknasviði innan deildar eldvirkni, jarðskjálfta og jarðhniks. Leitað er að einstaklingi sem mun taka þátt í teymisvinnu við vöktun eldfjalla og til að bregðast við eldgosum, auk þess að efla langtímaeftirlit með eldfjöllum á Íslandi og taka þátt í hættumatsgerð og rannsóknarverkefnum.
Veðurstofa Íslands er opinber stofnun sem er ábyrg fyrir eftirliti með náttúruvá á landsvísu og að veita upplýsingar og viðvaranir um yfirvofandi náttúruvá. Frá árinu 2011 hefur Veðurstofan formlega gegnt hlutverki eftirlitsaðila með eldfjöllum (State Volcano Observatory).
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í fjartengdum og beinum gasmælingum á ýmsum eldstöðvum á Íslandi
Túlkun á gasmælingum
Framsetning á gasmæligögnum og viðvörunum byggðum á gasmælingum fyrir mannaða sólarhringsvöktun á náttúruvá
Innlent og erlent samstarf í eldfjallaeftirliti
Miðlun upplýsinga til ýmissa hagsmunaaðila, t.d. almannavarna, flugmálayfirvalda, orkuiðnaðarins og fjölmiðla
Þátttaka í verkefnum sem tengjast hættumati og rannsóknum
Hæfniskröfur
Að lágmarki MS-gráða í jarðefnafræði, jarðeðlisfræði eða skyldum greinum
Sérfræðiþekking á eldfjallagasi og vöktun á eldfjallavá í andrúmslofti
Farsæl reynsla af gagnaúrvinnslu, framsetningu gagna og túlkun
Reynsla af gasmælingum
Þekking á eðlisfræði lofthjúps og ferlum tengdum gasdreifingu í andrúmslofti
Færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna sjálfstætt og í þverfaglegri teymisvinnu
Öguð og skipulögð vinnubrögð
Gott vald á töluðu og rituðu máli helst bæði á íslensku og ensku
Reynsla af tölulegri líkangerð er kostur
Reynsla af hættumatsgerð er kostur
Reynsla af efnavöktun er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Gildi Veðurstofunnar eru þekking, áreiðanleiki, framsækni og samvinna. Ráðningar hjá stofnuninni taka mið af þessum gildum.
Umsókninni þarf að fylgja starfsferilskrá og kynnisbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.
Hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um starf sérfræðings.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 22.04.2024
Nánari upplýsingar veitir
Kristín Jónsdóttir, kristinj@vedur.is
Sími: 5226000
Borgar Ævar Axelsson, borgar@vedur.is
Sími: 5226000