Staðaspár -

Sýna flokk veðurstöðva

Finna spá fyrir veðurstöð

Stöðvalisti
 

Textaspá fyrir allt landið

Veðurhorfur á landinu

Fremur hæg breytileg átt og bjart með köflum. Sunnan 3-8 m/s og dálítil væta vestanlands seint í kvöld.
Suðlæg átt, 3-10 m/s á morgun, hvassast við fjöll vestanlands. Dálítil rigning með köflum, en yfirleitt léttskýjað norðaustanlands.
Hiti 4 til 12 stig yfir daginn.
Spá gerð: 01.05.2024 05:19. Gildir til: 02.05.2024 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag:
Suðaustan 5-13 m/s og rigning með köflum, en yfirleitt þurrt á Norðaustur- og Austurlandi fram undir kvöld. Hiti 2 til 9 stig.

Á laugardag:
Suðlæg átt 3-10 og dálítil væta, en styttir upp um landið norðaustanvert. Hiti 3 til 11 stig.

Á sunnudag og mánudag:
Sunnan og suðvestan 5-13 og skúrir eða slydduél, en bjart að mestu norðaustan- og austanlands. Kólnar heldur.

Á þriðjudag:
Suðlæg eða breytileg átt og skúrir eða él, en þurrt að kalla um landið norðaustanvert. Hiti 2 til 9 stig að deginum.
Spá gerð: 01.05.2024 08:30. Gildir til: 08.05.2024 12:00.

Hugleiðingar veðurfræðings

Verkalýðsdagurinn heilsar með hægum vindi og yfirleitt björtu veðri en norðaustanlands verður skýjað fram yfir hádegi. Síðdegis í dag verður suðlæg átt, 3-8 m/s vestanlands. Hiti 3 til 10 stig yfir daginn.

Á morgun verður sunnan og suðvestan 5-13 m/s, hvassast við fjöll á Vesturlandi. Dálítil rigning á sunnan- og vestanverðu landinu en bjart að mestu norðaustantil. Hiti 6 til 11 stig.
Spá gerð: 01.05.2024 06:32. Gildir til: 02.05.2024 00:00.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica