Sérfræðingur í verkefnastjórnun
Veðurstofa Íslands leitar eftir öflugum sérfræðingi í verkefnastjórn stærri verkefna stofnunarinnar.
Veðurstofan gegnir mikilvægu öryggishlutverki þegar kemur að náttúruvá og sinnir rannsóknum á þessu sviði í samvinnu við innlendar og erlendar fag- og háskólastofnanir. Stofnunin annast einnig gerð hættumats og áhættumats vegna náttúrvár. Hér er því um er að ræða spennandi tækifæri við mótun og eftirfylgni stórra verkefna sem ganga þvert á fagsvið stofnunarinnar og eru mörg hver unnin í samvinnu við aðrar fagstofnanir og í alþjóðlegu umhverfi. Verkefnin sem um ræðir eru mikilvæg fyrir samfélagið og stuðla að bættu öryggi almennings og innviða.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipulag faglegrar verkefnastjórnunar
Verkefnastjórnun stærri verkefna, bæði innlendra og erlendra
Umsjón og ábyrgð við gerð verkáætlana í samráði við stjórnendur og hagaðila hverju sinni
Ráðgjöf til starfsmanna um faglega verkefnastjórnun
Miðlun upplýsinga innan stofnunar jafnt sem út á við
Dæmi um verkefni sem viðkomandi mun sinna er verkefnisstjórn áhættumats á Reykjanesskaga.
Hæfniskröfur
Háskólanám í verkefnastjórnun eða sambærileg menntun
Háskólamenntun á sviði raunvísinda er kostur
Gerð er krafa um farsæla reynslu í verkefnastjórnun stærri verkefna
Þekking og reynsla af beitingu þekktra aðferða innan verkefnastjórnunar
Greiningarhæfni og færni til að miðla niðurstöðum innan teyma og út á við
Góð hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
Frumkvæði, skipulagshæfni og nákvæmni í starfi
Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Gildi Veðurstofunnar eru þekking, áreiðanleiki, samvinna og framsækni. Ráðningar hjá stofnuninni taka mið af þessum gildum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um starf sérfræðings.
Umsókninni þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 22.04.2024
- Hægt er að sækja um starfið hér.
Nánari upplýsingar veitir
Borgar Ævar Axelsson, borgar@vedur.is