Skjalastjóri
Á fjármála- og rekstrarsviði
Veðurstofa Íslands leitar eftir drífandi og áreiðanlegum einstaklingi í stöðu skjalastjóra
Starfið tilheyrir Fjármála- og rekstrarsviði Veðurstofu Íslands, sem auk þess að hafa umsjón með fjármálum í samræmi við fjárlög og fjárheimildir stofnunarinnar, þá ber sviðið ábyrgð á daglegum rekstri s.s. móttöku, skjalamálum, mötuneyti, rekstri fasteigna.
Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að vera hluti af öflugum hópi starfsmanna fjármála- og rekstrarsviðs Veðurstofu Íslands, og krefst starfið góðrar samskiptahæfni og vilja til að taka þátt í umbótum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Bera ábyrgð á og framfylgja skjalastefnu Veðurstofunnar
Tryggja að skjala- og upplýsingastjórnun sé í samræmi við lög, reglur og reglugerðir
Hafa umsjón með rafrænu skjalstjórnunarkerfi stofnunarinnar
Hafa yfirsýn um uppbyggingu og aðgang starfsmanna
Gerð og umsjón geymslu- og grisjunaráætlunar
Tilkynna gagnagrunna til Þjóðskjalasafns Íslands
Þjálfun starfsmanna og kennsla á skjalastjórnunarkerfi
Önnur tilfallandi verkefni er lúta að skjalastjórnun, bókasafni og öðrum verkefnum sem til falla á sviðinu
Hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði skjalastjórnunar eða önnur menntun sem nýtist í starfi
Farsæl reynsla og þekking á rafrænum skjalastjórnunarkerfum
Góð hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
Farsæl reynsla af meðhöndlun skjala og skráningu í rafræn skjalastjórnunarkerfi
Frumkvæði, ásamt færni í að leiða og samhæfa aðgerðir
Skipulögð og öguð vinnubrögð
Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, bæði á ensku og íslensku
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Gildi Veðurstofunnar eru þekking, áreiðanleiki, samvinna og framsækni. Ráðningar hjá stofnuninni taka mið af þessum gildum
Hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um starf skjalastjóra
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.04.2024
Hægt er að sækja um starf hér.
Nánari upplýsingar veitir
Kristín Björg Árnadóttir, kristinar@vedur.is
Sími: 5226000
Borgar Ævar Axelsson, borgar@vedur.is
Sími: 5226000
Sækja um starf