Laus störf
25032024eldfjoll

Sérfræðingur í eldfjallagasi - Vöktun eldfjalla

Veðurstofa Íslands leitar að sérfræðingi á sviði eldfjallagass og vöktunar á eldfjallavá í andrúmslofti. Um er að ræða fullt starf á þjónustu- og rannsóknasviði innan deildar eldvirkni, jarðskjálfta og jarðhniks. Leitað er að einstaklingi sem mun taka þátt í teymisvinnu við vöktun eldfjalla og til að bregðast við eldgosum, auk þess að efla langtímaeftirlit með eldfjöllum á Íslandi og taka þátt í hættumatsgerð og rannsóknarverkefnum.

Veðurstofa Íslands er opinber stofnun sem er ábyrg fyrir eftirliti með náttúruvá á landsvísu og að veita upplýsingar og viðvaranir um yfirvofandi náttúruvá. Frá árinu 2011 hefur Veðurstofan formlega gegnt hlutverki eftirlitsaðila með eldfjöllum (State Volcano Observatory).

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í fjartengdum og beinum gasmælingum á ýmsum eldstöðvum á Íslandi

  • Túlkun á gasmælingum

  • Framsetning á gasmæligögnum og viðvörunum byggðum á gasmælingum fyrir mannaða sólarhringsvöktun á náttúruvá

  • Innlent og erlent samstarf í eldfjallaeftirliti

  • Miðlun upplýsinga til ýmissa hagsmunaaðila, t.d. almannavarna, flugmálayfirvalda, orkuiðnaðarins og fjölmiðla

  • Þátttaka í verkefnum sem tengjast hættumati og rannsóknum

Hæfniskröfur

  • Að lágmarki MS-gráða í jarðefnafræði, jarðeðlisfræði eða skyldum greinum

  • Sérfræðiþekking á eldfjallagasi og vöktun á eldfjallavá í andrúmslofti

  • Farsæl reynsla af gagnaúrvinnslu, framsetningu gagna og túlkun

  • Reynsla af gasmælingum

  • Þekking á eðlisfræði lofthjúps og ferlum tengdum gasdreifingu í andrúmslofti

  • Færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna sjálfstætt og í þverfaglegri teymisvinnu

  • Öguð og skipulögð vinnubrögð

  • Gott vald á töluðu og rituðu máli helst bæði á íslensku og ensku

  • Reynsla af tölulegri líkangerð er kostur

  • Reynsla af hættumatsgerð er kostur

  • Reynsla af efnavöktun er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Gildi Veðurstofunnar eru þekking, áreiðanleiki, framsækni og samvinna. Ráðningar hjá stofnuninni taka mið af þessum gildum.

Umsókninni þarf að fylgja starfsferilskrá og kynnisbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.

Hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um starf sérfræðings.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 22.04.2024

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Jónsdóttir, kristinj@vedur.is

Sími: 5226000

Borgar Ævar Axelsson, borgar@vedur.is

Sími: 5226000


Nýjar fréttir

Land rís í Svartsengi á sama hraða og áður

Um 60 skjálftar hafa mælst á kvikuganginum síðasta sólarhring.  Þetta er svipuð skjálftavirkni og mælst hefur síðustu daga, en um 50 til 80 skjálftar hafa mælst á sólarhring, flestir þeirra á svæðunum milli Stóra-Skógfells og Hagafells annars vegar og sunnan Þorbjarnar hins vegar.

Lesa meira

Vorþing um svæðisbundnar langtímaspár á norðurslóðum

Dagana 22. og 23. maí fer fram þrettándi samráðsfundur um veðurfarshorfur á norðurslóðum (Arctic Climate Forum 13, ACF13). Fundurinn er á vegum Arctic Regional Climate Network (ArcRCC-N) en gestgjafinn þetta vorið er Veðurstofa Íslands, í samstarfi við Alþjóðaveðurmálastofnunina (WMO).  Samráðsfundurinn fer fram í netheimum og er opinn öllum þeim sem skrá sig. Lesa meira

Rannsóknir á eldfjöllum efldust við undirritun EES samningsins fyrir 30 árum

Árið 2024 eru 30 ár síðan samningur Evrópska efnahagssvæðisins (EES) var undirritaður sem veitti Íslandi meðal annars aðgang að innri markaði Evrópusambandsins og aukin tækifæri til samstarfs í Evrópu. Ísland á aðild að fjölmörgum samstarfsáætlunum Evrópusambandsins í gegnum EES samninginn. Þessar áætlanir bjóða upp á tækifæri til samstarfs á fjölmörgum sviðum og hefur hver sínar áherslur og markmið. Veðurstofa Íslands hefur tekið þátt í fjölmörgum slíkum verkefnum. Eitt af stærri samstarfsverkefnum sem stofnunin hefur tekið þátt í og jafnframt leitt er verkefnið EUROVOLC (2018-2021). Verkefnið miðaði að samstarfi og samtengingu evrópskra eldfjallaeftirlits- og rannsóknarstofnanna.

Lesa meira

Tíðarfar í apríl 2024

Apríl var kaldur um allt land, einkum á Norður- og Austurlandi. Óvenjuþurrt var í mánuðinum víða um land að undanskildu norðausturhorni landsins. Þar var tiltölulega snjóþungt fram eftir mánuði og töluvert um samgöngutruflanir. Mjög sólríkt var í Reykjavík. Lesa meira

Síðasti vetrardagur er í dag

Íslenski veturinn, frá fyrsta vetrardegi 28. október 2023 til og með 24. apríl 2024 var kaldur. Meðalhiti á landsvísu var -0,2 stig sem er, -1,2 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Íslenski veturinn hefur ekki verið eins kaldur síðan veturinn 1998-99. Að tiltölu var kaldara á norðanverðu landinu. En veður var almennt gott. Það var hægviðrasamt og illviðri tiltölulega fátíð. Veturinn var óvenjulega þurr og sólríkur suðvestanlands og er veturinn sá sólríkasti í Reykjavík frá upphafi mælinga.

Lesa meira




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica