Staðaspár -

Sýna flokk veðurstöðva

Finna spá fyrir veðurstöð

Stöðvalisti
 

Textaspá fyrir allt landið

Veðurhorfur á landinu

Norðlæg átt 3-10 í dag, en 8-13 á Austfjörðum. Dálitlar skúrir eða él á Norður- og Austurlandi, en bjart með köflum suðvestanlands.
Svipað veður á morgun.

Hiti 2 til 12 stig yfir daginn, hlýjast sunnan heiða.
Spá gerð: 29.04.2024 04:00. Gildir til: 30.04.2024 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:
Norðan 3-10 m/s. Skýjað og hiti 0 til 5 stig, en yfirleitt léttskýjað og hiti að 12 stigum sunnantil.

Á miðvikudag:
Suðlæg eða breytileg átt, 3-10, hvassast vestast. Skýjað og dálítil rigning sunnan- og vestanlands síðdegis. Hiti 2 til 8 stig.

Á fimmtudag:
Suðlæg átt og rigning með köflum, en bjartviðri á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 4 til 10 stig að deginum.

Á föstudag:
Austlæg eða breytileg átt og víða þurrt en rigning suðaustantil. Hiti breytist lítið.

Á laugardag og sunnudag:
Suðlæg eða breytileg átt. Víða rigning með köflum og milt.
Spá gerð: 28.04.2024 20:01. Gildir til: 05.05.2024 12:00.

Hugleiðingar veðurfræðings

Í dag, mánudag verður vindur norðlægari en var um helgina. Strekkingur á Austfjörðum, en annars hægari vindur. Lítilsháttar skúrir eða él á Norður- og Austurlandi, en bjart með köflum suðvestanlands. Hiti 2 til 12 stig, mildast syðra.
Á morgun, þriðjudag er útlit fyrir norðan golu eða kalda, en um kvöldið verður líklega hægviðri víðast hvar. Bjart veður sunnan heiða, en skýjað og úrkomulítið norðantil. Hiti breytist lítið.
Á miðvikudag er svo útlit fyrir að vindur snúist til suðlægra átta með vætu um landið sunnan- og vestanvert, en ekki er að sjá að hlýni neitt í bili nema að hitinn mun hækka dálítið á Norður- og Austurlandi.
Spá gerð: 29.04.2024 06:39. Gildir til: 30.04.2024 00:00.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica