Staðaspár -

Sýna flokk veðurstöðva

Finna spá fyrir veðurstöð

Stöðvalisti
 

Textaspá fyrir Strandir og Norðurland vestra

Strandir og Norðurland vestra

Norðan 5-10 og lítilsháttar rigning eða slydda. Hæg breytileg átt á morgun og léttskýjað. Hiti 5 til 11 stig yfir daginn.
Spá gerð: 13.05.2024 21:22. Gildir til: 15.05.2024 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:
Suðaustan 5-10 m/s og dálitlar skúrir, en bjartviðri norðaustantil. Hiti 6 til 13 stig að deginum, hlýjast á Norðausturlandi.

Á fimmtudag:
Breytileg átt 3-8. Skýjað að mestu og dálítil væta vestanlands, en annars þurrt að kalla. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast syðst.

Á föstudag:
Suðlæg eða breytileg átt 5-10. Skýjað með köflum og víða lítilsháttar væta, en fer að rigna sunnan- og vestantil um kvöldið. Hiti breytist lítið.

Á laugardag:
Suðvestlæg eða breytileg átt, víða á bilinu 8-13 m/s. Skúrir eða rigning, en slydda til fjalla og hiti 4 til 10 stig.

Á sunnudag (hvítasunnudagur):
Vestlæg og síðar norðlæg átt. Rigning eða slydda á norðanverðu landinu, en bjart með köflum á Suðurlandi. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast suðaustantil.

Á mánudag (annar í hvítasunnu):
Útlit fyrir austlæga átt og rigningu. Hiti breytist lítið.
Spá gerð: 13.05.2024 20:24. Gildir til: 20.05.2024 12:00.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica