Spá um snjóflóðahættu - Suðvesturhornið
-
fim. 16. maí
Lítil hætta -
fös. 17. maí
Lítil hætta -
lau. 18. maí
Lítil hætta
Mikið hefur tekið upp til fjalla í hlýindum og rigningu undanfarið og snjóþekjan er talin nokkuð stöðug. Lítill snjór er til fjalla en ekki er útilokað að litlar votar spýjur geti fallið efst til fjalla.
Snjóflóðavandi á svæðinu
-
Tegund
-
HæðÖll hæðin
-
Viðhorf
-
Líkur
-
Stærð
Lítil vot snjóflóð geta farið af stað við sólbráð eða umferð fólks.
Lagskipting snævar og snjóþekjan
Snjór hefur sjatnað eftir hlýindi og hláku undanfarið og snjóþekjan er nokkuð stöðug. Litlar votar spýjur geta fallið þegar rignir efst til fjalla og í landslagsgildrum.
Nýleg snjóflóð
Engar tilkynningar um nýleg snjóflóð.
Veður og veðurspá
Tíðindalítið veður en lítilsháttar skúrir á fimmtudag og föstudag. Fremur hlýtt í veðri en frystir til fjalla á laugardag.