Staðaspár -

Sýna flokk veðurstöðva

Finna spá fyrir veðurstöð

Stöðvalisti
 

Textaspá fyrir allt landið

Veðurhorfur á landinu

Suðvestan 5-10 m/s og skúrir eða slydduél, en þurrt suðaustan- og austanlands fram eftir degi. Hiti 3 til 10 stig yfir daginn. Norðlægari í kvöld og léttir til á Suðvesturlandi.

Norðlæg átt 5-13 á morgun. Dálítil él um landið norðanvert og hiti 0 til 5 stig. Bjart með köflum sunnan heiða og hiti að 11 stigum að deginum, en stöku skúrir á Suðausturlandi undir kvöld.
Spá gerð: 17.05.2024 04:20. Gildir til: 18.05.2024 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag:
Norðlæg átt 5-13 m/s. Dálítil él um landið norðanvert og hiti 0 til 5 stig. Bjart með köflum sunnan heiða og hiti að 10 stigum yfir daginn, en stöku skúrir á Suðausturlandi undir kvöld.

Á sunnudag (hvítasunnudagur):
Gengur í austan 8-15, en 15-23 syðst á landinu síðdegis. Úrkomulítið á Norðvesturlandi, annars rigning með köflum, en dálítil slydda norðaustantil. Hiti 1 til 8 stig. Rigning eða slydda víðast hvar um kvöldið.

Á mánudag (annar í hvítasunnu):
Suðaustan og austan 5-13, en hvassara við norðurströndina. Víða rigning, en dregur úr vætu vestanlands eftir hádegi. Hiti 2 til 10 stig.

Á þriðjudag og miðvikudag:
Suðlæg eða breytileg átt og víða dálítil væta. Hiti 4 til 11 stig

Á fimmtudag:
Suðvestlæg eða breytileg átt og skúrir. Hiti breytist lítið.
Spá gerð: 16.05.2024 21:06. Gildir til: 23.05.2024 12:00.

Hugleiðingar veðurfræðings

Dálítil lægð mjakast til austurs skammt fyrir norðan land í dag. Áttin verður því suðvestlæg, gola eða kaldi og skúrir eða slydduél, en þurrt að kalla suðaustan- og austanlands fram undir kvöld. Hiti 3 til 10 stig að deginum. Norðlægari vindur í kvöld og léttir til á Suðvesturlandi.

Norðlæg átt 5-13 m/s á morgun. Dálítil él um landið norðanvert og hiti 0 til 5 stig, en bjart með köflum sunnan heiða og talsvert mildara yfir daginn. Þó má búast einhverjum skúrum á Suðausturlandi annað kvöld.

Á sunnudag er útlit fyrir að hægfara lægð verði skammt suður af landinu. Áttin verður því austlæg, yfirleitt kaldi eða strekkingur en hvassviðri syðst. Austanáttinni fylgir rigning með köflum sunnanlands, en dálítil slydda eða jafnvel snjókoma á Norðaustur- og Austurlandi. Svalt í veðri. Síðdegis bætir í úrkomu á austanverðu landinu, þar má búast við hríð á fjallvegum og þeir sem hyggja á ferðalög eru hvattir til að fylgjast með veðurspám.
Spá gerð: 17.05.2024 06:31. Gildir til: 18.05.2024 00:00.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica