Textaspá - Yfirlit

Hugleiðingar veðurfræðings

Dálítil lægð mjakast til austurs skammt fyrir norðan land í dag. Áttin verður því suðvestlæg, gola eða kaldi og skúrir eða slydduél, en þurrt að kalla suðaustan- og austanlands fram undir kvöld. Hiti 3 til 10 stig að deginum. Norðlægari vindur í kvöld og léttir til á Suðvesturlandi.

Norðlæg átt 5-13 m/s á morgun. Dálítil él um landið norðanvert og hiti 0 til 5 stig, en bjart með köflum sunnan heiða og talsvert mildara yfir daginn. Þó má búast einhverjum skúrum á Suðausturlandi annað kvöld.

Á sunnudag er útlit fyrir að hægfara lægð verði skammt suður af landinu. Áttin verður því austlæg, yfirleitt kaldi eða strekkingur en hvassviðri syðst. Austanáttinni fylgir rigning með köflum sunnanlands, en dálítil slydda eða jafnvel snjókoma á Norðaustur- og Austurlandi. Svalt í veðri. Síðdegis bætir í úrkomu á austanverðu landinu, þar má búast við hríð á fjallvegum og þeir sem hyggja á ferðalög eru hvattir til að fylgjast með veðurspám.
Spá gerð: 17.05.2024 06:31. Gildir til: 18.05.2024 00:00.

Veðuryfirlit

Skammt V af Vestfjörðum er 1010 mb lægð sem þokast A. Yfir Grænlandi er 1034 mb hæð.
Samantekt gerð: 17.05.2024 08:24.

Veðurlýsing


Samantekt gerð: 24.04.2024 09:49.

Veðurhorfur á landinu

Suðvestan 5-10 m/s og skúrir eða slydduél, en yfirleitt þurrt á austanverðu landinu. Hiti 3 til 10 stig yfir daginn.

Norðlæg átt 5-13 á morgun. Dálítil él um landið norðanvert og hiti 0 til 5 stig. Bjart með köflum sunnantil með hita að 12 stigum.
Spá gerð: 17.05.2024 10:29. Gildir til: 19.05.2024 00:00.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu

Suðvestan 5-10 m/s og stöku skúrir, vestlægari í kvöld. Norðan og norðvestan 3-8 á morgun og bjart með köflum. Hiti 6 til 10 stig að deginum. Norðaustan 5-13 annað kvöld.
Spá gerð: 17.05.2024 10:06. Gildir til: 19.05.2024 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á sunnudag (hvítasunnudagur):
Gengur í austan 8-15 m/s, en 15-23 syðst á landinu eftir hádegi. Lengst af rigning á sunnanverðu landinu. Rigning eða slydda á norðurhelmingi landsins síðdegis og snjókoma á heiðum og til fjalla. Hiti 1 til 8 stig, mildast syðst.

Á mánudag (annar í hvítasunnu):
Suðaustan og austan 5-10, en hvassara við norðurströndina. Rigning með köflum víða um land, en úrkomulítið vestanlands síðdegis. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast á Vesturlandi.

Á þriðjudag og miðvikudag:
Suðlæg eða breytileg átt og væta með köflum í flestum landshlutum. Hiti 5 til 12 stig

Á fimmtudag:
Vestlæg átt og skúrir, en þurrt og bjart á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti breytist lítið.
Spá gerð: 17.05.2024 09:09. Gildir til: 24.05.2024 12:00.


Textaspár eru skrifaðar af vakthafandi veðurfræðingi á Veðurstofu Íslands.




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica