Heimasíða Veðurstofu Íslands
       Veðurstöðvar        Aflagðar stöðvar        Veðurstöðvakort        Um tegundir veðurstöðva
Forsíða > Veður > Veðurathuganir - Veðurstöðvar > Tegundir

Um tegundir veðurstöðva

Mannaðar skeytastöðvar

Á skeytastöðvum er veðrið athugað kl. 3, 6, 9, 12, 15, 18, 21 og 24. Flestar stöðvarnar athuga einungis á fjórum til fimm athugunartímum yfir daginn, en á fimm stöðvum eru athuganir allan sólarhringinn (2019). Allar stöðvarnar hafa úrkomumæli og hitamælaskýli fyrir hitamæla. Þá hafa margar þeirra loftvog og vindmæli. Á stöðinni eru mæld og metin: Lofthiti, daggarmark, lágmarkshiti, hámarkshiti, úrkomumagn, úrkomutegund, loftþrýstingur, loftþrýstingsbreyting, einkenni loftþrýstingsbreytinga, skýjahula, hæð lægstu skýja, skýjahula lágskýja, tegund lágskýja, tegund miðskýja, tegund háskýja, skyggni, veðurlýsing, jarðlag, snjólag, snjódýpt, snjóhula í fjöllum, sjólag, vindhraði og vindátt. Nokkrar stöðvar mæla lágmarkshita næturinnar við jörð eða sjávarhita. Nokkrar stöðvar meta sjónflugsskilyrði yfir nálægar heiðar. Athuganir eru sendar á hverjum athugunartíma um tölvu til Veðurstofunnar og að auki er send mánaðarskýrsla í pósti.

Mannaðar veðurfarsstöðvar

Búið er að breyta öllum veðurfarsstöðvum í aðrar gerðir. Veðrið var athugað kl. 9, 15 og 21. Veðurathugun var skráð í mánaðarbók, sem send var til Veðurstofunnar í pósti. Flestar veðurfarsstöðvar höfðu einungis úrkomumæli og hitamælaskýli fyrir hitamæla. Á hverjum degi voru mæld og metin: Lofthiti, daggarmark, lágmarkshiti, hámarkshiti, úrkomumagn, úrkomutegund, skýjahula, skyggni, veðurlýsing, snjódýpt, snjóhula í byggð og fjöllum, hagi, sjólag, vindhraði og vindátt. Nokkrar stöðvar mældu lágmarkshita nætur við jörð eða sjávarhita.

Mannaðar úrkomustöðvar

Á stöðinni er úrkomumælir. Mæld er sólarhringsúrkoma á hverjum morgni kl. 9. Athugunarmaður metur og skráir úrkomutegund undangenginn sólarhring. Athugunarmaður mælir snjódýpt og leggur mat á snjóhulu í byggð og í fjöllum. Mælingar eru sendar daglega um síma til Veðurstofunnar og mánaðarskýrsla í pósti.

Sólskinsmælingastöðvar

Stöð sem skráir sólskinsstundir. Bjart sólskin skín á glerkúlu í mælinum og brennir far á sólarblað dagsins. Athugunarmaður skiptir um sólarblað í mælinum á hverju kvöldi. Sólarblöð eru send mánaðarlega til Veðurstofunnar.

Úrkomusafnmælar

Flestir úrkomusafnmælar eru í óbyggðum og safna úrkomu yfir lengri tímabil. Úrkomumagnið í þeim er mælt einu sinni í mánuði eða einu sinni á ári. Árlega þarf að tæma mælana og skipta um pækil og uppgufunarvörn í þeim.

Sjálfvirkar veðurstöðvar

Sjálfvirkar veðurstöðvar skrá mælingar yfirleitt á 10 mín fresti. Í sjálfvirkum stöðvum er skráningartölva og samskiptabúnaður við símkerfi eða net. Tölvur á Veðurstofunni hringja yfirleitt á 1 klst fresti í sjálfvirkar stöðvar og sækja mæligögn undangengins klukkutíma og færa gögnin í miðlægan gagnagrunn. Flestar stöðvarnar mæla lofthita og rakastig í 2 m hæð yfir jörðu og vindhraða og vindátt í 10 m hæð. Margar hafa úrkomumæli og loftvog. Þá eru sumar með sólgeislunarmæli, hitamæli við jörð, jarðvegshitamæla á 10, 20, 50 og 100 cm dýpi og snjódýptarmæli.

Þórður Arason, 23. október 2019