Málþing í Hofi: Aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga

01.01.2026

Málþing í Hofi: Aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga

Efnisyfirlit

Hvernig geta sveitarfélög brugðist við áhrifum loftslagsbreytinga? Á málþingi í Hofi á Akureyri 12. febrúar verða kynntur nýr leiðarvísir, loftslagsgögn og reynsla sveitarfélaga af aðlögun. Málþingið verður einnig í streymi.

Málþingið Aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga – frá áskorunum til aðgerða fer fram fimmtudaginn 12. febrúar 2026, klukkan 13–16.

Það er ætlað fulltrúum og starfsfólki sveitarfélaga, þeim sem starfa við stefnumótun, skipulag, innviði og umhverfis- og loftslagsmál, auk annarra áhugasamra.

Skráning er nauðsynleg, bæði fyrir þátttöku í Hofi og í streymi.

Nýr leiðarvísir og verkfæri fyrir sveitarfélög

Á málþinginu verður kynnt fyrsta útgáfa leiðarvísis fyrir sveitarfélög um aðlögun að loftslagsbreytingum. Hann byggir á reynslu tilraunaverkefna í fimm sveitarfélögum.

Einnig verður fjallað um nýja aðlögunaráætlun Íslands, Loftslagsatlas Íslands og fleiri verkfæri sem veita sveitarfélögum aðgengileg loftslagsgögn og greiningar til að styðja við ákvarðanatöku.

Veðurstofa Íslands þróar og heldur utan um Loftslagsatlas Íslands og hefur jafnframt lagt þekkingu, greiningar og gögn til verkefnisins.

Þá verður fjallað um náttúrumiðaðar lausnir, aðlögun í skipulagsgerð og reynslu sveitarfélaga af viðbrögðum við áhrifum loftslagsbreytinga. Málþinginu lýkur með pallborðsumræðum um tækifæri og áskoranir sveitarfélaga í aðlögunarmálum.

Samstarf um aðlögun

Málþingið er lokaviðburður aðgerðar C.10 í byggðaáætlun, Áhrif loftslagsbreytinga og sveitarfélög.

Byggðastofnun hefur leitt verkefnið í samstarfi við Veðurstofu Íslands, Skipulagsstofnun og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Markmiðið er að styrkja sveitarfélög í mótun og framkvæmd aðlögunaraðgerða vegna loftslagsbreytinga.


Dagskrá

Tími

Erindi og þátttakendur

13:00

Ávarp. Magnús Örn Agnesar Sigurðsson, skrifstofustjóri Skrifstofu loftslagsmála hjá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.

13:10

Aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga – nýr leiðarvísir fyrir sveitarfélög. Ragnhildur Friðriksdóttir, sérfræðingur hjá Byggðastofnun og verkefnastjóri C.10.

13:25

Áhrif loftslagsbreytinga og Loftslagsatlas Íslands. Anna Hulda Ólafsdóttir, skrifstofustjóri Skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands.

13:40

Trúnó með Gunnari Rúnari Ólafssyni, slökkviliðsstjóra slökkviliðs Akureyrar.

13:50

Kaffi og kruðerí.

14:05

Aðlögunaráætlun Íslands. Magnús Örn Agnesar Sigurðsson, skrifstofustjóri Skrifstofu loftslagsmála hjá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.

14:20

Náttúrumiðaðar lausnir: lykilaðlögunaraðgerð. Bryndís Marteinsdóttir, sviðsstjóri rannsókna, vöktunar og árangurs hjá Landi og skógi.

14:35

Trúnó með Ólafi Þór Ólafssyni, sveitarstjóra Reykhólahrepps.

14:45

Kaffi.

14:55

Leiðbeiningar um aðlögun í skipulagsgerð. Ólafur Árnason, forstjóri Skipulagsstofnunar.

15:10

Blágrænn Grundarfjörður. Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála hjá Grundarfjarðarbæ.

15:30

Pallborðsumræður. Elín Björk Jónasdóttir stýrir.

Nýr leiðarvísir og verkfæri fyrir sveitarfélög

Samstarf um aðlögun

Dagskrá