Fara á forsíðu
Viðvaranir

Frá vaktinni

Frá vaktinni

Síur

Áfram mælast hreyfingar á Svínafellsheiði

13.11.2026 | 15:43

Áfram mælast hreyfingar á Svínafellsheiði ofan Svínafellsjökuls. Þegar litið er yfir síðustu vikur hafa hreyfingarnar verið fremur jafnar, þótt inn á milli hafi komið stutt hlé og tímabil með auknum hreyfingum sem gætu tengst úrkomu.

Skriðuvakt

Veðurþjónusta og náttúruvárvakt starfa með eðlilegum hætti

13.11.2026 | 11:31

Veðurspár og viðvaranir Veðurstofu Íslands eru gefnar út með eðlilegum hætti þrátt fyrir bilun í þjónustu Microsoft.

Veðurvakt

Landris mælist áfram við Svartsengi

10.11.2026 | 16:02

Aflögunarmælingar sýna áfram landris við Svartsengi. Meðfylgjandi mynd sýnir mælingar frá GPS-stöðinni í Svartsengi frá nóvember 2025 til 9. nóvember 2026.

Eldstöðvar

Nýjustu mælingar sýna áfram litlar hreyfingar á Svínafellsheiði

10.11.2026 | 16:00

Mælingar á Svínafellsheiði sýna áfram litlar hreyfingar og ekki hafa komið fram merki um verulegar breytingar á þróuninni undanfarna daga. Fylgst er náið með svæðinu með togmælum og GNSS/GPS-mælum og benda nýjustu gögn til þess að þar mælist áfram lítil hreyfing.

Skriðuvakt

Hægt hefur á hreyfingum í Svínafellsheiði

04.11.2026 | 13:06

Hægt hefur á hreyfingum í Svínafellsheiði síðustu daga. Of snemmt er að draga ályktanir um framhaldið og náin vöktun heldur áfram.

Skriðuvakt

Hreyfingar mælast á ný á Svínafellsheiði

01.11.2026 | 11:43

Hreyfingar hafa mælst á ný í Svínafellsheiði. Þær eru hægar og ekki er talin bráð hætta á berghlaupi. Veðurstofan hefur aukið vöktun á svæðinu.

Skriðuvakt

Snjóflóðaaðstæður á landinu

30.10.2026 | 08:59

Um síðustu helgi grófst yfirborðshrím á Norðurlandi og í byrjun vikunnar féllu nokkur breið flekaflóð í Svarfaðardal. Þrátt fyrir hlýindi geta enn verið til staðar veikleikar á stöku stað, sérstaklega í mikilli hæð þar sem snjór hefur safnast í nokkru magni.

Snjóflóðavakt

Landris mælist áfram við Svartsengi 

27.10.2026 | 15:53

Aflögunarmælingar sýna áfram landris við Svartsengi. Líkön sem byggja á mælingunum benda til þess að rúmmálsbreyting undir svæðinu haldi áfram með nokkuð stöðugum hraða. Landrisið sýnir að þrýstingur heldur áfram að byggjast upp á kvikusöfnunarsvæðinu á nokkurra kílómetra dýpi undir Svartsengi. 

Eldstöðvar

Aukin hætta á skriðum og grjóthruni vegna mikillar úrkomu

27.10.2026 | 11:04

Skilin sem spáð var fyrir um í gær ganga nú yfir landið og mikil úrkomuákefð hefur mælst á nokkrum stöðum, meðal annars á Austfjörðum, Austurlandi að Glettingi og á Tröllaskaga. Úrkoma hefur víða mælst meiri en spár gerðu ráð fyrir og skilin virðast ganga hraðar yfir en reiknað var með, einkum á norðanverðu landinu.

Skriðuvakt

Úrkoma og leysingar á þriðjudag, 27. október

26.10.2026 | 14:43

Veðurspáin gerir ráð fyrir úrkomuskilum sem ganga yfir landið frá aðfaranótt þriðjudags, 27. október. Úrkoman byrjar á Suðausturlandi og nær síðan yfir mestallt landið. Mesta úrkomuákefðin verður við og sunnan Vatnajökuls, á Austfjörðum, á Flateyjarskaga og á Ströndum. Skilin ganga fremur hratt yfir landið og á miðvikudag styttir upp. Mesta uppsafnaða úrkomu samkvæmt veðurspánni er að vænta á Ströndum, einkum á jöklum og til fjalla, nyrst á Tröllaskaga, á Flateyjarskaga, á Vesturkinn (fjöllum austan Vopnafjarðar), á norðanverðum Austfjörðum og á Öræfum.

Skriðuvakt

Síur

Vakt

Tög