Fara á forsíðu
Viðvaranir

Spurt og svarað

Spurt og svarað

Efnisyfirlit

Hér finnurðu leiðbeiningamyndbönd og svör við algengum spurningum um vedur.is. Skoðaðu hvernig þú finnur veðurspá fyrir þinn stað, vistar uppáhaldsstaði og notar kortin til að skoða spána eftir svæðum og tíma.

Þú finnur líka skýringar á táknum og litum, leiðbeiningar um snjóflóðaspár og jarðskjálftaupplýsingar og svör um stillingar, gögn og efni af gamla vefnum. Í kaflanum „Fleiri möguleikar á vedur.is“ kynnum við meðal annars hallakortið og Loftslagsatlasinn.

Leiðbeiningamyndbönd um vedur.is

Veðurspáin eftir leiðinni þinni


Skoðaðu hvernig spáir á leiðinni sem þú ætlar að fara. Veldu stað á veðurþáttakortinu, færðu merkið eftir ferðaleiðinni og notaðu tímastikuna til að skoða spána á áætluðum ferðatíma.

Ljóst og dökkt útlit á vedur.is – sólin og tunglið


Veldu það útlit sem hentar þér. Smelltu á tunglið til að velja dökkt útlit og á sólina til að fara aftur í ljóst útlit. Í myndbandinu sýnum við hvernig þú skiptir um útlit á síðunni og kortunum.

Veldu uppáhaldsstaðina þína á vedur.is


Hafðu veðurspána fyrir þína staði við höndina. Finndu staðinn og smelltu á bókamerkið við nafnið til að festa hann efst í staðalistanum á forsíðunni. Smelltu aftur á bókamerkið til að fjarlægja hann úr uppáhaldsstöðum.

Veðurspáin fyrir þinn stað – spárit, sólargangur og mælingar


Hvernig spáir á þínum stað? Á vedur.is geturðu skoðað spána fyrir næstu klukkustundir og daga og séð hvenær sólin rís og sest.

Í myndbandinu sýnum við hvernig þú finnur staðarspána, skoðar spárit, lest textaspá og nálgast veðurathuganir. Við sýnum líka hvernig þú opnar stærri kortasýn með upplýsingum um spá og mælingar.

Lítið i – mikill fróðleikur á vedur.is


Hvað merkja táknin og litirnir á kortunum? Smelltu á i-táknið hægra megin á kortinu til að opna skýringar.

Í myndbandinu sýnum við hvar þú finnur skýringar á veðurtáknum, vindáttum, viðvörunarlitum og táknum fyrir náttúruvá. Undir i-tákninu er líka fræðsla um loftslagsbreytingar.

Fleiri möguleikar á vedur.is

Veðurspá fyrir fimm staði í töflu, með veðurtákni, hita og vindi fyrir hverja klukkustund. Ísafjörður og Landmannalaugar eru með fyllt bókamerki og efst í listanum

Þú getur fest uppáhaldsstaðina þína efst á síðunni

Smelltu á bókamerkið við staðinn til að hafa hann efst í listanum. Þannig hefurðu veðurspána alltaf við höndina, hvort sem þú fylgist með veðrinu heima eða í Landmannalaugum.

Veðurþáttakort þar sem smellt hefur verið á stað sem er ekki með veðurstöð. Lítill gluggi við punktinn sýnir vind, hita, úrkomu og skýjahulu fyrir staðinn.

Skoðaðu veðurspá hvar sem er á kortinu

Smelltu hvar sem er á veðurþáttakortinu og fáðu veðurspá fyrir þann stað, líka þar sem engin veðurstöð er. Kortið opnast með vind valinn. Í kortastillingum geturðu bætt við hita, úrkomu og skýjahulu.

Veðurspásíðan í dökku og ljósu útliti. Ör bendir á sólartáknið efst til hægri, sem skiptir aftur yfir í ljóst útlit.

Ljós og myrkur

Smelltu á tunglið efst til hægri til að velja dökkt útlit og á sólina til að fara aftur í ljóst útlit.

Kort af Íslandi með tímastiku neðst

Hvernig spáir næstu daga?

Færðu tímastikuna á veðurþáttakortinu og skoðaðu hvernig spáin breytist yfir daginn eða næstu daga.

Hallakort á snjóflóðakorti Veðurstofunnar. Brattar hlíðar eru litaðar gular, appelsínugular og rauðar eftir halla. Lagavalmyndin er opin hægra megin og Hallakort valið.

Þú getur skoðað bratta í landslagi

Á leið á fjöll? Á snjóflóðasíðunum finnurðu hallakort sem sýnir hversu bratt landið er. Brattar hlíðar eru litaðar frá gulu við um 30° halla upp í dökkrautt við um 50°. Þar finnurðu líka snjóflóðaspár og leiðbeiningar sem hjálpa þér að meta aðstæður og velja leið í vetrarferðum.

alt=""

Loftslagsatlas: Hvernig aðlögumst við?

Atlasinn sýnir hvernig loftslag á Íslandi gæti breyst fram til loka aldarinnar, með hita, úrkomu og sjávarflóðum. Þú getur skoðað söguleg gildi og framreikninga fyrir 110 staði á landinu. Gögnin eru opin öllum.

alt=""

Vísindi sem nýtast samfélaginu

Loftslagsþjónusta Veðurstofunnar brúar bilið milli vísinda og samfélags. Hún miðlar vísindalegum upplýsingum um áhrif og afleiðingar loftslagsbreytinga á veðurfar, vatnafar, jökla og hafið umhverfis Ísland, og hvernig samfélagið getur aðlagað sig að breyttum heimi.

alt=""

Lítið i – mikill fróðleikur

Smelltu á i-táknið merkt „Skýringar“ til að opna glugga með skýringum og fræðslu. Þar geturðu valið á milli efnisflipa um veður, viðvaranir, snjóflóð, skriður, jarðskjálfta og loftslagsbreytingar.

Kortin og veðrið

Hvað get ég gert á veðurþáttakortinu?

Veðurþáttakortið sýnir veðrið á korti af Íslandi. Þú velur hvaða veðurþætti þú vilt sjá, vind, hita, úrkomu eða skýjahulu, og skoðar hvernig þeir breytast næstu daga. Þú opnar kortið með hnappnum „Veðurþáttakort“ á forsíðu Veðurspár.

Á kortinu og í kringum það eru þessir hlutar:

  1. Plús og mínus efst til vinstri þysja inn og út.
  2. Krossinn efst til hægri lokar kortinu.
  3. i-hnappurinn opnar Skýringar með útskýringum á táknum og hugtökum.
  4. Hnappurinn með þremur lögum opnar Kortastillingar, þar sem þú velur hvaða þætti kortið sýnir.
  5. Tunglið skiptir yfir í dökkt útlit.
  6. Neðst til vinstri sýnir litakvarði hvað litirnir þýða fyrir valinn þátt.
  7. Neðst er tímastika sem sýnir hvaða tíma kortið sýnir, nokkra daga fram í tímann.
  8. Smelltu hvar sem er á kortið til að fá gildi fyrir þann stað.
Veðurþáttakort með hitaspá sýndri í litum, hitakvarða neðst til vinstri og tímastiku neðst. Upplýsingagluggi sýnir 1,7 °C á völdum stað og stjórnhnappar eru við efri horn kortsins.

Hvernig sé ég veðrið á ákveðnum stað?

Notaðu Staðarleit efst á vefnum og skrifaðu nafn staðarins. Þá opnast veðurspá fyrir hann.

Á veðurþáttakortinu geturðu líka smellt hvar sem er til að fá vind, hita, úrkomu og skýjahulu fyrir þann stað á valinn tíma.

Hvernig vista ég staði sem ég skoða oft?

  1. Opnaðu veðurspá fyrir stað.
  2. Ýttu á bókamerkið við hlið nafnsins eða við staðinn í listanum á forsíðu Veðurspár.
  3. Vistaður staður birtist efst í listanum. Ýttu aftur á bókamerkið til að fjarlægja hann.
Staðalisti í Veðurspá með bókamerkjum við staðarnöfn. Ísafjörður, Landmannalaugar og Hvolsvöllur eru vistaðir staðir með fylltum bókamerkjum og birtast efst í listanum.

Hvenær var spáin gerð?

Undir textaspánni stendur hvenær hún var gerð og hversu lengi hún gildir, með texta á borð við „Veðurspá gerð [dagsetning og tími]. Gildir til [dagsetning og tími]“.

Textaspá með rauðri ör sem bendir á útgáfutíma og gildistíma undir spánni.

Hvar skoða ég veðrið á morgun og næstu daga?

  1. Opnaðu Veðurspá og veldu „Næstu dagar“ efst í spánni til að sjá dagaspá í stað klukkustundaspár.
Veðurspásíða með rauðri ör sem bendir á hnappinn „Næstu dagar“ til að velja dagaspá í stað klukkustundaspár.
  1. Á veðurþáttakortinu er tímastika neðst sem nær nokkra daga fram í tímann. Veldu tíma á stikunni, notaðu örvarnar til að færa þig um eitt skref eða ýttu á „Núna“ til að fara aftur í núverandi tíma.
Veðurþáttakort af Íslandi með tímastiku neðst. Rauð ör bendir á tímabendilinn sem sýnir valda dagsetningu og tíma.

Hvernig fæ ég veðurspá fyrir stað sem finnst ekki í staðarleit?

Þú getur fengið veðurspá fyrir staðinn á veðurþáttakortinu, þótt hann sé ekki með eigin síðu.

Ertu til dæmis á leið í göngu og vilt vita hvort fari að rigna uppi á fjallinu? Smelltu á kortið þar sem þú ætlar að vera og sjáðu spá um vind, hita, úrkomu og skýjahulu. Færðu tímastikuna til að sjá hvernig veðrið þróast yfir daginn.

Veðurþáttakort með völdum punkti á Hornströndum. Upplýsingagluggi sýnir spá um vind, hita, úrkomu og skýjahulu fyrir föstudaginn 23. október klukkan 14.

Hvernig verður veðrið á Hornströndum? Smelltu þar sem þú ætlar að vera og færðu tímastikuna til að skoða spána fyrir þann tíma sem hentar þér.

Hvernig skoða ég fleiri veðurþætti saman?

Opnaðu Kortastillingar með hnappnum með þremur lögum hægra megin á veðurþáttakortinu og veldu þá þætti sem þú vilt sjá: vind, hita, úrkomu og skýjahulu. Valdir þættir eru auðkenndir dökkbláir og skýring fyrir hvern þeirra birtist neðst til vinstri. Tímastikan gildir fyrir alla valda þætti í einu. Gott er að byrja á tveimur. Hiti og úrkoma hjálpa þér til dæmis að átta þig á aðstæðum og vindur og úrkoma sýna hvar hvassviðri og úrkoma fara saman.

Veðurþáttakort með blárri ör sem bendir á hnappinn fyrir Kortastillingar. Hitakort og úrkomukort eru valin og litakvarðar þeirra birtast neðst til vinstri.

Hver er munurinn á færslum frá vaktinni og fréttum?

Færslur frá vaktinni segja frá því sem er að gerast, stöðu sem er vöktuð og þróun sem getur breyst. Fréttir draga saman, útskýra eða kynna afmarkað efni, til dæmis niðurstöður rannsókna eða yfirlit um tíðarfar.

Sami atburður getur verið viðfangsefni beggja. Á meðan eldgos stendur yfir birtast færslur frá vaktinni, en eftir á getur komið frétt með samantekt um gang þess.

Hvar finn ég hugleiðingar og athugasemdir veðurfræðings

Hugleiðingar og athugasemdir veðurfræðings birtast sem færslur frá veðurvaktinni, með öðrum færslum vaktarinnar. Þær eru merktar með merkimiðum á borð við „Veðurvakt“ og „Hugleiðingar veðurfræðings“.

Hugleiðingar veðurfræðings eru gefnar út tvisvar á dag. Þær eru lengra mál og lýsa veðrinu í dag og næstu daga á mannamáli, til dæmis hvar rignir, hvar snjóar og hvernig hitinn þróast.

Athugasemdir veðurfræðings eru ábendingar um veður sem vert er að hafa í huga, þótt ekki sé tilefni til að gefa út viðvörun.

  1. Á forsíðu Veðurspár eru nýjustu færslur vaktarinnar undir „Nýjustu vaktafærslur“. Hver færsla sýnir fyrirsögn, dagsetningu, tíma og merkimiða.
  2. Veldu „Sjá allar tilkynningar frá vaktinni“ til að fá lista yfir allar færslur og leitaðu að þeirri sem þú vilt, til dæmis út frá merkimiðanum „Hugleiðingar veðurfræðings“.
  3. Á veðurspásíðunni er flipinn „Frá veðurvakt“ við hlið flipanna Veðurspá, Textaspá og Athuganir. Þar eru færslur veðurvaktarinnar.
alt=""

Hvar finn ég skýringar á táknum og hugtökum?

Smelltu á i-hnappinn hægra megin á kortinu. Þá opnast gluggi með flipum fyrir Veður, Viðvaranir, Snjóflóð, Skriður, Jarðskjálfta og Loftslagsbreytingar, þar sem táknin og hugtökin eru útskýrð.

Undir „Loftslagsbreytingar“ er Loftslagsatlas Íslands kynntur, en hann sýnir hvernig loftslag gæti breyst fram til loka aldarinnar.

Myndin sýnir forsíðu vedur.is og bláa ör benda á upplýsingatáknið i neðst hægra megin á síðunni

Ef þú saknar einhvers


Hvar er gamli vefurinn?

Eldri vefur Veðurstofunnar er áfram aðgengilegur á eldri.vedur.is. Hnappur í valseðlinum á nýja vefnum vísar þangað og er aðgengilegur frá öllum síðum.

Af hverju finn ég ekki allt sem var á gamla vefnum?

Nýi vefurinn er ekki afrit af þeim gamla. Við flytjum ekki allar síður yfir heldur þróum nýjar síður sem birtast smám saman.

Á meðan nýju síðurnar eru í þróun er eldra efni aðgengilegt á eldri.vedur.is og hnappur í valseðlinum vísar þangað.

Neðst á veðursíðum eru flipar fyrir Viðvaranir, Veður, Jarðskjálfta, Snjóflóð, Skriður, Flugveður, Sjóveður, Eldstöðvar og Vatnafar.


Snjóflóð og jarðskjálftar

Hvernig les ég snjóflóðaspá?

Snjóflóðaspá Veðurstofunnar segir til um hættustig á stórum svæðum næstu þrjá daga. Spárnar eru gerðar fyrir fimm landsvæði og þurfa ekki að vera lýsandi fyrir hættu í byggð.

  1. Opnaðu Skýringar með i-hnappinum og veldu flipann „Snjóflóð“ til að sjá hættutöfluna.
  2. Finndu landsvæðið sem þú ætlar á og lestu hættustigið, frá 1 (lítil hætta) til 5 (mjög mikil hætta).
  3. Skoðaðu hvaða snjóflóðavandi er í gildi: nýsnævi, skafsnjór, votur snjór, snjóskrið eða viðvarandi veik lög.
  4. Mettu aðstæður á staðnum. Spáin segir ekki hvort tiltekin brekka sé örugg.
Snjóflóðakort með dökkblárri ör sem bendir á i-hnappinn efst til hægri. Skýringar á snjóflóðaspám og hættustigum eru opnar vinstra megin.

Hvað þýða táknin fyrir skráð snjóflóð

Skráð snjóflóð birtast sem tákn á kortinu. Stærð hringsins sýnir stærð flóðs: lítill hringur er 1–1,5, miðlungsstór hringur 2–2,5 og stór hringur 3 eða meira.

Liturinn sýnir hversu langt er síðan flóðið féll: dökkblár er 0–2 dagar, millibláir 2–5 dagar og ljósblár 5–10 dagar. Hringur með geisla er flóð sem var skráð í dag og lítill dökkur punktur er óyfirfarið flóð.

Hvernig les ég jarðskjálftasíðuna?

Á kortinu er hver skjálfti hringur. Stærð hringsins sýnir stærð skjálftans, útlit hans sýnir hvort hann sé yfirfarinn og liturinn sýnir hversu langt er síðan hann varð, frá dökkfjólubláum (0–4 klst.) í ljósan (36–48 klst.).

Listinn „Stærstu skjálftarnir“ og línuritið sýna stærð og tíma. Hægt er að velja skjálftasvæði og sía eftir stærð og því hvort skjálftar séu yfirfarnir. Nýr skjálfti yfir 3,5 að stærð er merktur sérstaklega á kortinu.

Af hverju breytist stærð eða staðsetning skjálfta?

Úrvinnsla á fyrstu staðsetningu og stærð skjálfta er sjálfvirk. Yfirfarnir skjálftar gefa nákvæmari stærð og staðsetningu og eru merktir sérstaklega á kortinu. Stærð og staðsetning nýlegs skjálfta geta því breyst þegar sérfræðingur hefur farið yfir hann.

Aðgengi og stillingar

Get ég fengið efnið lesið upp?

Já. Ýttu á „Hlusta“ efst í spjöldunum og vefurinn les textann upphátt. Valmyndin við hlið hnappsins býður meðal annars upp á að stækka texta, breyta textastillingu, sækja upplesturinn sem mp3-skrá og fá leiðbeiningar.

Blá ör sem bendir á hnappinn hlusta

Hvernig skipti ég á milli ljóss og dökks útlits?

Í hnappastikunni hægra megin á kortinu er hnappur með tungli. Ýttu á hann til að fá dökkt útlit og á sólina til að fara aftur í ljóst útlit.

Veðurspásíða í ljósu útliti vinstra megin og dökku útliti hægra megin. Bláar örvar benda á tunglið og sólina efst til hægri, þar sem skipt er um útlit.

Gögn og ábendingar

Eru gögn Veðurstofunnar opin?

Já. Veðurstofan veitir opinn og gjaldfrjálsan aðgang að fjölbreyttum gögnum. Góður upphafspunktur er api.vedur.is, en leiðin að gögnunum fer eftir tegund þeirra:

  • Veðurathuganir: Hér má sækja mælingar frá veðurstöðvum og upplýsingar um stöðvarnar.
  • Jarðvísindagögn hjá EPOS-Ísland: Veldu tegund gagna, svo sem jarðskjálfta, GNSS-mælingar eða upplýsingar um eldfjöll og eldgos. Við hverja þjónustu eru leitarskilyrði og leiðbeiningar um hvernig gögnin eru sótt.
  • Landupplýsingagátt: Hér er yfirlit yfir kortagögn og kortaþjónustur, meðal annars vegna ofanflóða og eldfjalla, ásamt leiðbeiningum um hvernig hægt er að tengjast þeim.
  • Gagnaveita fyrir spár og athuganir: Hér eru leiðbeiningar um að sækja meðal annars staðarspár, textaspár og veðurathuganir á XML-, RSS- og CSV-sniði.

Aðgangur og notkunarskilmálar fara eftir gagnasafni.

Hvert sendi ég ábendingu um vefinn?

Sendu okkur línu á nyrvefur@vedur.is. Við þiggjum gjarnan ábendingar um það sem betur má fara og það sem þér finnst hafa tekist vel. Ábendingar eru teknar saman og þeim forgangsraðað eftir bestu getu. Þær hjálpa okkur að þróa vefinn í samvinnu við notendur.

Leiðbeiningamyndbönd um vedur.is

Fleiri möguleikar á vedur.is

Kortin og veðrið

Ef þú saknar einhvers

Snjóflóð og jarðskjálftar

Aðgengi og stillingar

Gögn og ábendingar