Laus störf
Veldu starfsheiti til að sjá starfslýsingu, hæfniskröfur og umsóknarfrest.
Sérfræðingur í loftslagsaðlögun og gagnagreiningu
Starfshlutfall 100%
Staðsetning Höfuðborgarsvæðið
Umsóknarfrestur Til og með 30. nóvember 2026
Veðurstofa Íslands leitar að sérfræðingi með sterka greiningarhæfni, góða færni í gagnavinnslu og mjög góða tölvukunnáttu til starfa á Skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar (SLA).
Starfið felst í að vinna með gögn og upplýsingar um loftslagsbreytingar og nýta niðurstöðurnar til að styðja við áhættumat, stefnumótun og aðlögunaraðgerðir. Unnið er í nánu samstarfi við sérfræðinga, stjórnvöld, sveitarfélög og aðra samstarfsaðila.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Söfnun, samræming, gæðaprófun og greining gagna um loftslagsbreytingar, áhrif þeirra og aðlögun.
- Skýr og myndræn framsetning gagna og niðurstaðna fyrir ólíka notendahópa.
- Þátttaka í viðkvæmni- og áhættumati vegna loftslagsbreytinga.
- Þróun landsbundins aðlögunarvettvangs og samþætting gagna, leiðbeininga og stafrænna verkfæra.
- Verkefnasamhæfing, eftirfylgni, árangursmat og skýrslugerð.
- Samstarf við sveitarfélög og þátttaka í vinnustofum, samráði og miðlun.
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Færni í vinnslu, greiningu og framsetningu gagna.
- Mjög góð tölvukunnátta og færni í notkun verkfæra til gagnavinnslu og greiningar.
- Hæfni til að meta gæði gagna, greina samhengi og draga rökstuddar ályktanir.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Góð skipulagshæfni, sjálfstæði og samskiptafærni.
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
- Þekking eða reynsla á sviði loftslagsbreytinga, umhverfismála, náttúruvár, áhættumats eða sjálfbærni er kostur.
- Farsæl reynsla af Python, landupplýsingakerfum (GIS), gagnagrunnum eða þróun stafrænnar þjónustu er kostur.
Í gildum Veðurstofunnar er lögð áhersla á að vera áreiðanleg, samvinnufús og hugvitsöm. Ráðningar taka mið af þessum gildum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Á stofnuninni eru tækifæri til faglegrar þróunar og vinnutími er sveigjanlegur. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Umsókninni skal fylgja starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstyður hæfni sína fyrir starfið.
Um Veðurstofu Íslands
Á Veðurstofu Íslands starfar fjölbreyttur og samstilltur hópur fólks við að efla öryggi og áfallaþol samfélagsins gegn náttúruvá og áhrifum loftslagsbreytinga. Veðurstofan þjónustar allt samfélagið með því að vakta, gefa út spár og viðvaranir vegna veðurs, jarðskjálfta, eldgosa, hlaupa, vatnsflóða og ofanflóða.
Sérfræðingar stofnunarinnar eru leiðandi á sínu sviði og styðja viðbrögð samfélagsins vegna náttúruvár og áhrifa loftslagsbreytinga með gagnasöfnun, varðveislu gagna, greiningu, rannsóknum, ráðgjöf og miðlun um náttúrufar á Íslandi.
Veðurstofa Íslands er opinber stofnun sem heyrir undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Á Veðurstofunni starfa um 170 manns. Auk þess starfa um 50 manns við athugana- og eftirlitsstörf víðs vegar um landið.
Nánari upplýsingar veita
Anna Hulda Ólafsdóttir, skrifstofustjóri
522 6000 · annaol@vedur.is
Borgar Ævar Axelsson, mannauðsstjóri
522 6000 · borgar@vedur.is
Sérfræðingur í líkanreikningum á sviði ofanflóða
Starfshlutfall 100%
Starfsstaður Ísafjörður, Akureyri, Neskaupstaður eða Reykjavík
Umsóknarfrestur Til og með 4. desember 2026
Veðurstofa Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing í líkanreikningum hjá deild snjóflóða og skriðufalla sem er á Þjónustu- og rannsóknasviði. Á deildinni starfa rúmlega 20 sérfræðingar við ýmis störf sem tengjast ofanflóðum, bæði við vöktun, rannsóknir og hættumat. Starfsfólk deildarinnar starfar á fjórum starfsstöðvum, á Ísafirði, á Akureyri, í Neskaupstað og í Reykjavík. Einnig tilheyra deildinni snjóathugunarmenn sem eru staðsettir víða um land. Viðkomandi hefur val um starfsstað úr ofangreindum fjórum starfsstöðvum.
Starfið felst í sérfræðivinnu með eðlisfræðileg ofanflóðalíkön og fleiri líkanreikninga. Viðkomandi verður hluti af öflugu og samstilltu teymi ofanflóðasérfræðinga Veðurstofunnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Líkanreikningar og þróun líkana í tengslum við ofanflóðahættumat og ofanflóðavöktun.
- Snjóflóða-, skriðu- og krapaflóðalíkanreikningar í tvívíðum dýpisheilduðum líkönum og þrívíðum líkönum (OpenFoam).
- Líkanreikningar fyrir svæðisbundnar krapaflóða- og skriðuspár.
- Greining á aðdraganda veðuratburða með vélanámi (machine learning).
- Þátttaka í öðrum verkefnum tengdum ofanflóðahættumati.
- Þátttaka í alþjóðlegum og innlendum samstarfsverkefnum.
- Innri og ytri kynningar, s.s. samskipti við hagaðila.
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun í eðlisfræði, jarðeðlisfræði, stærðfræði eða verkfræði.
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
- Góð þekking og reynsla af líkanreikningum.
- Reynsla af þrívíðum líkanreikningum í OpenFoam og úrvinnsla niðurstaðna er kostur.
- Geta til að greina flókin gögn og taka ákvarðanir þrátt fyrir óvissar forsendur.
- Áhugi á náttúruvá og að taka þátt í að þróa aðferðir til þess að draga úr hættu vegna náttúruhamfara.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Góð skipulagshæfni, sjálfstæði og nákvæmni í starfi.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Í gildum Veðurstofunnar er lögð áhersla á að vera áreiðanleg, samvinnufús og hugvitsöm. Ráðningar taka mið af þessum gildum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Á stofnuninni eru tækifæri til faglegrar þróunar og vinnutími er sveigjanlegur.
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Umsókninni skal fylgja starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstyður hæfni sína fyrir starfið.
Um Veðurstofu Íslands
Á Veðurstofu Íslands starfar fjölbreyttur og samstilltur hópur fólks við að efla öryggi og áfallaþol samfélagsins gegn náttúruvá og áhrifum loftslagsbreytinga. Veðurstofan þjónustar allt samfélagið með því að vakta, gefa út spár og viðvaranir vegna veðurs, jarðskjálfta, eldgosa, hlaupa, vatnsflóða og ofanflóða.
Sérfræðingar stofnunarinnar eru leiðandi á sínu sviði og styðja viðbrögð samfélagsins vegna náttúruvár og áhrifa loftslagsbreytinga með gagnasöfnun, varðveislu gagna, greiningu, rannsóknum, ráðgjöf og miðlun um náttúrufar á Íslandi.
Veðurstofa Íslands er opinber stofnun sem heyrir undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Á Veðurstofunni starfa um 170 manns. Auk þess starfa um 50 manns við athugana- og eftirlitsstörf víðs vegar um landið.
Nánari upplýsingar veita
Harpa Grímsdóttir, fagstjóri
522 6000 · harpa@vedur.is
Hugrún Björk Hafliðadóttir, mannauðssérfræðingur
522 6000 · hugrun@vedur.is