Fréttir

Gigur_08052024

Kvikusöfnun undir Svartsengi áfram stöðug - 16.5.2024

Um 80 skjálftar mældust á svæðinu í kringum kvikuganginn í gær, 15. maí, flestir undir 1,0 að stærð. Þetta er svipuð skjálftavirkni og mælst hefur síðustu daga, en um 50 til 80 skjálftar hafa mælst á sólarhring, flestir þeirra á svæðunum milli Stóra-Skógfells og Hagafells annars vegar og sunnan Þorbjarnar hins vegar. Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi og rís land þar með sama hraða og áður. Að svo stöddu er ekki ástæða til að áætla annað en að áfram séu auknar líkur á nýju kvikuhlaupi og öðru eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni næstu daga.

Lesa meira
Kort13052024

Vorþing um svæðisbundnar langtímaspár á norðurslóðum - 13.5.2024

Dagana 22. og 23. maí fer fram þrettándi samráðsfundur um veðurfarshorfur á norðurslóðum (Arctic Climate Forum 13, ACF13). Fundurinn er á vegum Arctic Regional Climate Network (ArcRCC-N) en gestgjafinn þetta vorið er Veðurstofa Íslands, í samstarfi við Alþjóðaveðurmálastofnunina (WMO).  Samráðsfundurinn fer fram í netheimum og er opinn öllum þeim sem skrá sig. Lesa meira
Hopmynd

Rannsóknir á eldfjöllum efldust við undirritun EES samningsins fyrir 30 árum - 10.5.2024

Árið 2024 eru 30 ár síðan samningur Evrópska efnahagssvæðisins (EES) var undirritaður sem veitti Íslandi meðal annars aðgang að innri markaði Evrópusambandsins og aukin tækifæri til samstarfs í Evrópu. Ísland á aðild að fjölmörgum samstarfsáætlunum Evrópusambandsins í gegnum EES samninginn. Þessar áætlanir bjóða upp á tækifæri til samstarfs á fjölmörgum sviðum og hefur hver sínar áherslur og markmið. Veðurstofa Íslands hefur tekið þátt í fjölmörgum slíkum verkefnum. Eitt af stærri samstarfsverkefnum sem stofnunin hefur tekið þátt í og jafnframt leitt er verkefnið EUROVOLC (2018-2021). Verkefnið miðaði að samstarfi og samtengingu evrópskra eldfjallaeftirlits- og rannsóknarstofnanna.

Lesa meira

Tíðarfar í apríl 2024 - 3.5.2024

Apríl var kaldur um allt land, einkum á Norður- og Austurlandi. Óvenjuþurrt var í mánuðinum víða um land að undanskildu norðausturhorni landsins. Þar var tiltölulega snjóþungt fram eftir mánuði og töluvert um samgöngutruflanir. Mjög sólríkt var í Reykjavík. Lesa meira




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica