19.11.2026
Horfur næstu daga
Það hefur verið hægur vindur á landinu í dag, sums staðar él eða skúrir og frost 0 til 8 stig, en allvíða frostlaust sunnantil.
Á morgun grefur lægð um sig suðvestur af landinu og það fer að blása aðeins af suðaustri. Dálítil él eða skúrir víða, þó síst á Norðurlandi. Hlýnar smám saman.
Annað kvöld fer að bæta í vind sunnan- og vestanlands, allhvass vindur eða strekkingur þar á laugardaginn og lítilsháttar væta, en hægari og þurrt á Norður- og Norðausturlandi.
Á laugardagskvöld er útlit fyrir að skil gangi inn yfir vestanvert landið með suðaustan hvassviðri eða stormi og rigningu eða slyddu, en í öðrum landshlutum verður vindur hægari og úrkomuminna.
Eftir hádegi á sunnudag dregur svo líklega úr vindi, en þá gera spár ráð fyrir vætusömu veðri á suðurhluta landsins.