Fara á forsíðu
Viðvaranir

Litlar hreyfingar mælst á Svínafellsheiði síðustu daga

18.11.2026

Litlar hreyfingar mælst á Svínafellsheiði síðustu daga

Litlar hreyfingar hafa mælst á Svínafellsheiði síðustu daga. Nýjustu gögn frá togmælum og GPS-mælum sýna ekki merki um að hreyfingar hafi aukist á svæðinu.

Hægar hreyfingar hafa mælst á Svínafellsheiði frá því í lok september. Þetta eru fyrstu skýru hreyfingarnar sem greinast frá því að vöktunarkerfi var sett upp á svæðinu árið 2018.

Veðurstofa Íslands heldur áfram að vakta svæðið allan sólarhringinn og fylgist sérstaklega með breytingum á hraða hreyfinganna.

Nýjustu upplýsingar um þróunina á Svínafellsheiði eru birtar á atburðasíðu Veðurstofunnar. Þar má einnig lesa fyrri stöðuuppfærslur.

Loftmynd af Svínafellsheiði með merktum GPS-stöðvum, togmælum og fastpunktum. Rauð lína sýnir legu sprungna og svartir punktar tákna jarðföll.

Staðsetning mælitækja á Svínafellsheiði. Á kortinu eru sýndar GPS-stöðvar, togmælar og fastpunktar, ásamt legu sprungna og jarðföllum.