18.11.2026
Rólegt veður fram að helgi
Alldjúp lægð liggur nánast kyrrstæð 1000 km fyrir sunnan landið. Þessi lægð veldur allhvassri austanátt með slydduéljum við suðausturströndina. Annars er útlit fyrir mun hægari austlæga eða breytilega átt og víða bjart, en stöku slydduél við suðaustur- og austurströndina og norðantil í kvöld. Víða frost, en við frostmark sunnantil.
Á fimmtudag er útlit fyrir hæglætis veður og stöku slydduél, en að mestu þurrt vestantil. Fremur kalt.
Bætir í vind á föstudag sunnan- og vestantil með lítilsháttar rigningu eða slyddu með köflum, en annars hægvirði og úrkomulítið. Hlýnar í veðri.