18.11.2026
Víða ísstíflur á norðanverðu landinu
Undanfarna daga hefur verið talsvert frost á norðanverðu landinu. Þetta hefur haft í för með sér ísstíflumyndun víða í ám sem getur valdið staðbundnum flóðum þar sem vatn kemst ekki leiðar sinnar heldur byggist upp. Veðurstofan mælist til þess að fólk sýni aðgát við árbakka og tilkynni Veðurstofu verði það vart við ísstíflur og sérstaklega staðbundin flóð.