Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það.
Rúmlega 1000 skjálftar mældust þessa viku sem eru fleiri en í síðustu viku þegar rúmlega 880 skjálftar mældust. Þar af hafa um 980 verið yfirfarnir. Virknin var nokkuð dreifð um landið en mesta virknin var á Reykjanesskaganum, við kvikuganginn og við Reykjanestá . Stærsti skjálfti vikunnar mældist 3,5 að stærð við Eldey þann 16. maí. Einn skjálfti mældist við Heklu í vikunni.
Landris heldur áfram undir Svartsengi og hafa um 17 milljón rúmmetrar kviku safnast þar frá 16. mars.
Nánar er fjallað um jarðhræringarnar nærri Grindavík í frétt á forsíðu sem er uppfærð reglulega.
Lesa meiraUm 980 skjálftar mældust þessa viku sem eru fleiri en í síðustu viku þegar rúmlega 800 skjálftar mældust. Þar af hafa um 860 verið yfirfarnir. Virknin var nokkuð dreyfð um landið en mesta virknin var á Reykjanesskaganum, við kvikuganginn og í hrinu við Trölladyngju þann 9. maí. Stærsti skjálfti vikunnar varð þann 6. maí við Kleifarvatnog mældist 3,3 að stærð. Fannst hann víða á Reykjanesskaganum og höfuðborgarsvæðinu.
Eldgosið sem hófst 16. mars Sundhnjúksgígaröð dó út í vikunni og var goslokum lýst yfir þann 9. maí.
Nánar er fjallað um jarðhræringarnar nærri Grindavík í frétt á forsíðu sem er uppfærð reglulega.
Nánar má skoða skjálftavirkni hér: Skjálfta Lísa
Lesa meiraUm 830 skjálftar mældust þessa viku sem eru fleiri en í síðustu viku þegar 650 skjálftar mældust. Virknin var nokkuð dreyfð um landið. Stærsti skjálfti vikunnar varð þann 5. maí, við Eldey á Reykjaneshrygg og mældist 3,5 að stærð.
Eldgosið sem hófst 16. mars á Sundhnjúksgígaröð stendur enn yfir og virkni er ennþá bundin við einn gíg.
Nánar er fjallað um jarðhræringarnar nærri Grindavík í frétt á forsíðu sem er uppfærð reglulega.
Nánar má skoða skjálftavirkni hér: Skjálfta Lísa
Lesa meiraUm 650 skjálftar mældust þessa viku sem eru fleiri en í síðustu viku þegar 450 skjálftar mældust. Virknin var nokkuð dreifð um landið. Stærsti skjálfti vikunnar varð þann 22. apríl, við Reykjanestá og mældist 3,1 að stærð.

Lesa meira