17.11.2026
Aðgerðalítið veður næstu daga
Alldjúp og víðáttumikil lægð liggur nánast kyrrstæð 900 km fyrir sunnan við landið. Þessi lægð veldur allhvassri austanátt með slydduéljum við suðausturströndina fram á nótt. Annars er útlit fyrir mun hægari austlæga eða breytilega átt og víða bjart og yfirleitt þurrt. Víða frost, en við frostmark sunnantil.
Á fimmtudag er útlit fyrir hæglætisveður og að mestu þurrt, en stöku él við norður- og austurströndina. Fremur kalt.
Suðaustan 5-13 á föstudag og lítilsháttar rigning eða slydda með köflum sunnan- og vestanlands en annars hægviðri en úrkomulaust. Hlýnar í veðri